Fara í efni

Menningarmál - seinni úthlutun styrkja 2026

Málsnúmer 2606056

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 33. fundur - 13.10.2026

Anna Dagbjört bar upp mögulegt vanhæfi og vék af fundi kl. 15:18
Auglýst var eftir styrkjum til menningarstarfs í september og bárust alls 9 umsóknir.
ÍTM þakkar fyrir þær fjölmörgu umsóknir sem bárust vegna menningarmála. Því miður sá nefndin sér ekki fært að styrkja alla umsækjendur. ÍTM leggur til við sveitarstjórn að eftirfarandi hljóti styrki: Leikdeild Eflingar 300.000 vegna kaupa á tæknibúnaði, Umf. Einingin 150.000 til að koma blaðinu Neista á tölvutækt form, Urðarbrunnur 200.000 vegna örnefnaskráningar, Bryndís Fjóla 150.000 vegna Álfastígs og Félag sauðfjárbænda 100.000 vegna hrútasýningar.
Að auki leggur nefndin til að gerður verði samstarfssamningur vegna Brúarkynninga og að viðbót verði gerð við samstarfssamning Mývetnings vegna menningarviðburða.
Anna Dagbjört kom aftur á fund kl. 16:11
Getum við bætt efni þessarar síðu?