Fara í efni

UMF Efling - formlegt erindi til sveitarstjórnar um íþróttastefnu

Málsnúmer 2610005

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 33. fundur - 13.10.2026

Fyrir íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd liggur erindi frá UMF Eflingar um íþróttastefnu sveitarfélagsins.
ÍTM þakkar erindið og sýnir skilning á aðstæðum félagsins.
ÍTM leggur til við sveitarstjórn að samstarfssamningar við íþróttafélögin verði kláraðir sem allra fyrst. Í skólastefnu Þingeyjarsveitar er sérstaklega fjallað um samþættingu skóla, íþrótta- og frístundastarfs. Nefndin hvetur skólastjórnendur til þess að hafa það í huga við stundatöflugerð.
ÍTM leggur til við sveitarstjórn að gerð verði heildstæð stefna um íþróttir, tómstundir og menningarmál fyrir nefndina og sveitarfélagið til þess að starfa eftir. Jafnframt verði búnaðarmál í íþróttahúsum og sölum til íþróttaiðkunar könnuð.
Getum við bætt efni þessarar síðu?