Skipulagsnefnd
Dagskrá
Líney Rúnarsdóttir sat fundinn í fjarfundi.
1.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
Húsnæðis-, manvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 13. október 2026 Aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044 sem samþykkt var i sveitarstjórn 26. febrúar 2026. Við gildistöku aðalskipulagsins falla úr gildi Aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2010-2022 og Aðalskipulag Skútustaðahrepps 2011-2023, ásamt síðari breytingum.
Skipulagsnefnd fagnar staðfestingu aðalskipulagsins.
2.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer
Lagt fram uppfært minnisblað vegna breytinga á gjaldskrám fyrir 2027 í samræmi við bókun sveitarstjórnar um forsendur fjárhagsáætlunar 2027 frá 1.10.2026.
Skipulagsnefnd felur umhverfis- og framkvæmdasviði að uppfæra og samræma gjaldskrár í samræmi við umræður á fundinum.
3.Vegagerðin - beiðni um staðsetningu stoppistöðvar Aðaldalsvegar
Málsnúmer 2609034Vakta málsnúmer
Vegagerðin óskar eftir heimild til að færa stoppistöð og nýta aðstöðu og plan við Ýdali.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að staðsetningu stoppistöðvar við félagsheimilið Ýdali og leggur til að staur með merkingum verði settur upp í samráði við húsvörð austast á bílaplaninu fremur en við aðalinngang. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að ræða við Vegagerðina um aðkomu þeirra að lýsingu á svæðinu. Skipulagsnefnd hvetur Vegagerðina til að skoða aðrar stoppistöðvar í sveitarfélaginu með það að markmiði að auka öryggi og bæta þjónustu.
Málinu vísað til sveitarstjórnar.
Málinu vísað til sveitarstjórnar.
4.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis
Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer
Haldinn var fundur vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Mývatns og Laxár í starfshópi þann 10. sept sl. og í samráðshóp þann 22. sept. sl. Öll gögn vegna vinnunnar má nálgast á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar https://www.nattura.is/myvatn-og-laxa.
Lagt fram til kynningar
5.Sílalækur - afmörkun jarðar - merkjalýsing
Málsnúmer 2610029Vakta málsnúmer
Tekin fyrir merkjalýsing frá Hákon Jenssyni f.h. Guðmundar Karls Jónassonar þar sem afmörkun jarðarinnar Sílalæk er staðfest.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við afmörkun jarðarinnar og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist.
6.Garður stofna lóð fyrir spennistöð - merkjalýsing
Málsnúmer 2610030Vakta málsnúmer
Efla gerir merkjalýsingu fyrir Rarik um stofnun lóðar undir spennistöð í Garði Mývatnssveit. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar í Garði og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd óskar eftir, í framtíðinni, að merkjalýsingum fylgi afstöðumynd þannig að hægt sé að átta sig á aðstæðum og staðsetningu á auðveldan hátt. Nefndin bendir á að ekki er ljóst hvort lóðin liggi innan veghelgunarsvæðis og þá hvort umsagnar Vegagerðarinnar sé þörf fyrir byggingu á lóðinni.
7.Stöng - merkjalýsing
Málsnúmer 2610026Vakta málsnúmer
Tekin fyrir merkjalýsing frá Hirti Erni Hjartarsyni f.h. Gistiheimilisins Stöng ehf um stofnun lóðar undir fyrirhugaða skemmu að Stöng. Fyrir liggur tillaga að staðsetningu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Byggingarfulltrúa falið að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist.
8.Brettingsstaðir og Ljótsstaðir - mótmæli opinnar reiðleiðar í aðalskipulagi
Málsnúmer 2609039Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá landeigendum Brettingsstaða og Ljótsstaða þar sem mótmælt er opinni reiðleið í aðalskipulagi í gegnum land Brettingsstaða og Ljótsstaða
Skipulagsnefnd bendir á að umrædd leið um Varastaðaskóg er ekki merkt sem reiðleið í nýstaðfestu aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044.
Í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar eru skilgreindar reiðleiðir um sveitarfélagið, það er hins vegar ekki tæmandi útlistun á opnum leiðum eða forsenda nýtingar. Í aðalskipulagi eru sýndar stofnreiðleiðir þar sem gert er ráð fyrir framkvæmdum og endurbótum. Reiðleiðir kunna að vera opnar fyrir öðrum fararmátum s.s. gangandi og umferð reiðhjóla. Skipulagsnefnd lítur svo á að skilgreining reiðleiðar í aðalskipulagi geri fyrst og fremst ráð fyrir að þar sé unnt að leggja reiðleið fyrir ríðandi menn og gefur engum rétt til að reka hrossastóð eftir þeim leiðum án samráðs við landeigendur og án þess að bera ábyrgð á skemmdum.
Skipulagsnefnd lítur svo á að umrædd leið falli undir skilgreiningu á héraðsleið í flokkun reiðleiða í Reiðvegahandbók Vegagerðarinnar og Landsambands hestamanna.
Skipulagsnefnd vekur einnig athygli á því að skv. náttúruverndarlögum nr. 60/2013 er óheimilt að reka hross yfir gróið land þannig að náttúruspjöll hljótist af eða hætta skapist á náttúruspjöllum. Skv. reglugerð um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands nr. 528/2005 skal, þegar farið er eftir gömlum þjóðleiðum, þar sem þær eru markaðar í landið skal eigi teyma fleiri hross en svo að þau rúmist innan slóðar, ellegar reka hross þannig að þau lesti sig.
Skipulagsnefnd telur að frjáls för einstaklinga um gamlar þjóðleiðir sé partur af menningararfi og sé mikilvægt að sé haldið við. Nefndin áréttar að forsenda fyrir því að þjóðleiðum sé haldið opnum áfram byggist á góðri og hóflegri umgengni og sátt um nýtingu. Nefndin beinir því til hestamannafélaga á svæðinu að taka upp samtal um reiðleiðir og umgengni þeirra og samráð og af virðingu við landeigendur.
Skipulagsnefnd tekur ekki undir að ekki hafi verið staðið nægilega vel að kynningu aðalskipulags. Það var í öllu farið eftir þeim lögum og reglum sem um það gilda og reyndar gott betur. Í aðdraganda þess voru auglýst þrjú kynningarferli, þau voru auglýst á öllum þeim miðlum sem okkur datt í hug til að ná til sem flestra íbúa og landeigenda. Auk þess voru haldnir og auglýstir íbúafundir sem voru vel sóttir.
Það er mikilvægt að fylgjast með því sem gerist í skipulagsmálum á svæðinu og það er á ábyrgð landeigenda og íbúa að gera það til að gæta sinna hagsmuna. Skipulagsnefnd bendir á vefsíðuna Skipulagsgáttin þar sem hægt er að gerast áskrifandi af málum eftir því sem hentar, bæði eftir afmörkuðum svæðum, póstnúmerum, sveitarfélögum eða öðru sem skiptir máli.

9.Skjálfandafljót í Kinn - ósk um efnistökusvæði á skipulag - aðalskipulag - breyting á skipulagi
Málsnúmer 2609070Vakta málsnúmer
Vegagerðin óskar eftir því að efnistökusvæði við Ljósvetningabúð verði sitt inn á aðalskipulag. Einnig er óskað eftir breytingu á skilgreiningu á efnistökusvæði í landi Miðhvamms þar sem náman er stækkuð.
Efnistökusvæðin verða nýtt í framkvæmdir við Norðausturveg um Skjálfandafljót í Kinn sem nú er í undirbúningi. Fjallað var um efnistöku í umhverfismatsskýrslu fyrir framkvæmdina. Efnisþörf er óbreytt frá umhverfismatsskýrslu en óskað er eftir stærri námum á aðalskipulag til að auka sveigjanleika í vinnslu.

Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta vinna skipulagsbreytingu í samræmi við beiðni Vegagerðarinnar og í samræmi við umhverfismat Norðausturvegar (85) um Skjálfandafljót í Kinn.
10.Grenjaðarstaður - stækkun kirkjugarðs
Málsnúmer 2506035Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá formanni sóknarnefndar Grenjaðarstaðarkirkju er varðar stækkun kirkjugarðsins.
Skipulagsnefnd samþykkir stækkun á kirkjugarðinum, með fyrirvara um samþykki Minjastofnunar, enda er stækkunin í samræmi við nýsamþykkt aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Skipulagsnefnd óskar eftir að teikning af grafarplani verði lögð fyrir nefndina til staðfestingar þegar það liggur fyrir. Skipulagsnefnd hvetur kirkjugarðaráð til að ganga frá samningum um eignarhald og merkjalýsingu svo sveitarfélagið geti undirbúið svæðið til greftrunar.
11.Skógamelar - deiliskipulag
Málsnúmer 2603067Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Skógarmela í Fnjóskadal. Skipulagið var kynnt á vinnslustigi frá 18. september til 2. október og bárust umsagnir frá Minjastofnun, HNE, Rarik og Vegagerðinni.
Skipulagsnefnd telur ekki þörf á viðbrögðum við fram komnum athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að svara Vegagerðinni vegna vegtenginga. Skipulagsnefnd vekur athygli á að óheimilt er að hefja framkvæmdir innan svæðisins fyrr en að skipulagsferli og leyfisveitingum er lokið.
Málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.Skógar - Sólkistan gistihús - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2610031Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Svavari Ingvarssyni er varðar nýtt deiliskipulag Skóga vegna Sólkistunnar - þróunar ferðaþjónustu að Skógum með byggingu gistihúsa.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna skipulagslýsingu vegna deiliskipulagsgerðar fyrir Skógar - Sólkistan í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
13.Stóru Laugar - ferðaþjónusta - deiliskipulag
Málsnúmer 2610032Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu vegna uppbyggingar ferðaþjónustu að Stóru Laugum.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna skipulagslýsingu vegna deiliskipulagsgerðar fyrir Stóru Laugar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Þeistareykir - iðnaðarlóði - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2610033Vakta málsnúmer
Landsvirkjun vinnur að því að undirbúa svæði fyrir atvinnuuppbyggingu sem gæti nýtt þá einstöku orku- og auðlindastrauma sem eru fyrir hendi á Þeistareykjum. Gert er ráð fyrir að staðsetja mætti 2-3 viðskiptatækifæri á lóðinni en MýSköpun væri það fyrsta.
Kynntar eru fyrir sveitarfélaginu hugmyndir á frumstigi, þ.m.t. tillögu að staðsetningu fyrir iðnaðarlóðina og hvernig best verði staðið að áframhaldandi deiliskipulagsvinnu í góðu samstarfi við sveitarfélagið.

Gestir frá Landsvirkjun kynntu fyrirhugaða uppbyggingu iðnaðar á Þeistareykjasvæðinu og mögulegar staðsetningar. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að við gerð deiliskipulags verði settir skilmálar um vandaðan frágang, áherslu á góða ásýnd svæðisins, lágmörkun á raski og möguleg umhverfisáhrif. Nefndin hvetur Landsvirkjun til að kynna áformin hagsmunaaðilum snemma í ferlinu.
15.Laxá - viðgerðir á stíflum - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2609071Vakta málsnúmer
Landsvirkjun óskar eftir heimild til viðgerða á stíflumannvirkjum við Laxárvirkjun í Laxárdal. Framkvæmdasvæðið er við Laxárstíflu II. Verkstaður er innan lokaðs athafnasvæðis sem tilheyrir Laxárvirkjun. Um er að ræða endurbætur á núverandi mannvirkjum.
Um er að ræða viðhald mannvirkja og framkvæmdir sem eru það óverulegar og ekki líklegar til að hafa veruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess og krefjast því hvorki byggingarleyfis né framkvæmdaleyfis.
16.Breiðamýri 1 Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2606027Vakta málsnúmer
Óskað er heimildar til að bæta þessu máli á dagskrá. Svör landeigenda berast í dag.
Byggingarleyfi fyrir 513 m2 viðbyggingu við fjós að Breiðamýri í Reykjdal var grenndarkynnt frá 15. september til 13. október 2026. Ein athugasemd barst.
Byggingarleyfi fyrir 513 m2 viðbyggingu við fjós að Breiðamýri í Reykjdal var grenndarkynnt frá 15. september til 13. október 2026. Ein athugasemd barst.
Skipulagsnefnd vísar í nýsamþykkt aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044 og stefnu um gerð deiliskipulags í kafla 3.6. Skipulagsnefnd telur að stækkun fjóssins falli ekki undir þau atriði sem kalla á deiliskipulagsgerð. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að svara athugasemdinni og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
17.Umsögn - Drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 1232010
Málsnúmer 2610043Vakta málsnúmer
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010. Fyrirhugað er að aðlaga löggjöfina að breyttum tímum, bæta skilvirkni stjórnsýslu og stytta ferla þar sem það á við. M.a. er lagt til að einfalda, skýra og samræma ákvæði skipulagslaga um birtingu upplýsinga og auglýsinga í skipulagsmálum, m.a. þannig að Skipulagsgátt verði vettvangur fyrir formlega birtingu gagna og móttöku athugasemda og umsagna. Einnig eru lagðar til breytingar vegna svæðisskipulags og sett inn heimild til að fella niður svæðisskipulag að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þá eru lagðar til breytingar til að einfalda tiltekna þætti málsmeðferðar við gerð og breytingar skipulagsáætlana og til að tryggja skilvirkari og fyrirsjáanlegri meðferð mála án þess að dregið sé úr samráði, faglegum undirbúningi eða réttaröryggi. Sjá mál í samráðsgátt stjórnvalda nr. S-190/2026
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:30.