Þeistareykir - iðnaðarlóði - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2610033
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 55. fundur - 14.10.2026
Landsvirkjun vinnur að því að undirbúa svæði fyrir atvinnuuppbyggingu sem gæti nýtt þá einstöku orku- og auðlindastrauma sem eru fyrir hendi á Þeistareykjum. Gert er ráð fyrir að staðsetja mætti 2-3 viðskiptatækifæri á lóðinni en MýSköpun væri það fyrsta.
Kynntar eru fyrir sveitarfélaginu hugmyndir á frumstigi, þ.m.t. tillögu að staðsetningu fyrir iðnaðarlóðina og hvernig best verði staðið að áframhaldandi deiliskipulagsvinnu í góðu samstarfi við sveitarfélagið.

Gestir frá Landsvirkjun kynntu fyrirhugaða uppbyggingu iðnaðar á Þeistareykjasvæðinu og mögulegar staðsetningar. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að við gerð deiliskipulags verði settir skilmálar um vandaðan frágang, áherslu á góða ásýnd svæðisins, lágmörkun á raski og möguleg umhverfisáhrif. Nefndin hvetur Landsvirkjun til að kynna áformin hagsmunaaðilum snemma í ferlinu.