Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Umsögn - drög að lögum um skipulag og mannvirki.
Málsnúmer 2611036Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar umsögn sviðsstjóra umhverfis og framkvæmdasviðs um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr.160/2010 (mál s-214/2026) gerir athugasemdir við drög að breytingu á lögum um mannvirki.
Skipulagsnefnd tekur undir umsögn sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010 (mál S-214/2026) og leggur sérstaka áherslu á að kostnaður við lögbundið eftirlit verði sambærilegur um land allt.
2.Þjóðlenda - Afréttaland - merkjalýsing
Málsnúmer 2611039Vakta málsnúmer
Stofnun Þjóðlendu í Þingeyjarsveit, nánar afréttur í Þingeyjarsveit
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum og úrskurði óbyggðanefndar.
3.Þjóðlendur - Selland - merkjalýsing
Málsnúmer 2611038Vakta málsnúmer
Stofnun Þjóðlendu í Þingeyjarsveit, nánar Selland í Þingeyjarsveit
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum og úrskurði óbyggðanefndar og hæstaréttar.
4.Skjálfandafljót í Kinn - ósk um efnistökusvæði á skipulag - aðalskipulag - breyting á skipulagi
Málsnúmer 2609070Vakta málsnúmer
Lögð fram lýsing og tillaga á vinnslustigi um breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044 vegna efnsitöku fyrir fyrirhugaðan Norðausturveg um Skjálfandafljót í Kinn. Vegagerðin undirbýr nú framkvæmdir við veginn með það að markmiði að auka umferðaröryggi vegfarenda og tryggja greiðari samgöngur. Til þess að tryggja möguleika á efnistöku í nágrenni fyrirhugaðs framkvæmdasvæðis hefur Vegagerðin óskað eftir því við sveitarstjórn Þingeyjarsveitar að setja eina nýja námu inn á aðalskipulag sveitarfélagsins og hækka efri mörk efnistöku á námu sem þegar er gert ráð fyrir í skipulaginu.
Metin hafa verið umhverfisáhrif vegaframkvæmdarinnar og í umhverfismati þessarar breytingar er stuðst við efni úr umhverfismatsskýrslu.
Metin hafa verið umhverfisáhrif vegaframkvæmdarinnar og í umhverfismati þessarar breytingar er stuðst við efni úr umhverfismatsskýrslu.
Skipulagsnefnd samþykkir að kynna skipulagslýsingu og tillögu á vinnslustigi ásamt forsendum hennar íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 1. og 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.Aldeyjarfoss - deiliskipulag
Málsnúmer 2406041Vakta málsnúmer
Vinnslutillaga deiliskipulagsins var í kynningu frá 7.10. til 4.11.2025. Haldinn var kynningarfundur í Kiðagili í Bárðardal þann 14. október þar sem mættu 35 manns og fóru fram góðar umræður. Sjö umsagnir bárust í Skipulagsgátt. Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi þar sem brugðist hefur verið við tillögum og athugasemdum. Síðan hefur farið skoðun á salernismálum á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
6.Þeistareykir - iðnaðarlóð - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2610033Vakta málsnúmer
Landsvirkjun óskar eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi Þeistareykjavirkjunar í Þingeyjarsveit. Breyting á deiliskipulagi er fyrir nýjar iðnaðarlóðir þar sem fyrirtæki geta nýtt innviði og auðlindastrauma svæðisins, s.s. varma, raforku, vatn og aðra strauma sem eru til staðar á svæðinu. Í júní 2025 var undirritaður samstarfssamningur milli Landsvirkjunar og MýSköpunar um hugsanlega örþörungaræktun á svæðinu og viljayfirlýsing í nóvember 2026. Tilgangurinn með samningnum við Landsvirkjun er að byggja undir aukna verðmætasköpun og fjölga störfum á svæðinu með nýtingu auðlindastrauma frá Þeistareykjastöð1.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna almenningi tillöguna fyrir auglýsingu.
7.Dalakofinn á Laugum - umsókn um lóð
Málsnúmer 2605025Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Yrkis eignum ehf. til sveitarstjórnar og skipulagsfulltrúa þar sem umsókn um lóðarstækkun við Dalakofann er ítrekuð og óskum við eftir skýrari afstöðu frá sveitarfélaginu til að hægt sé að taka næstu skref, verði tekið jákvætt í erindið.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að svara Yrki og funda með þeim um framtíðarútfærslur og deiliskipulag.
Sveitarfélagið er reiðubúið að vinna að úthlutun lóðar sunnan Dalakofans vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar N1 við Dalakofann en leggur áherslu á að svæðið verði nýtt á sem bestan hátt með hagsmuni íbúa, vegfarenda og þjónustuaðila að leiðarljósi. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að yfirfara aðkomu og vegtengingar, göngutengingar og möguleika á uppbyggingu á svæðinu öllu m.t.t. deiliskipulagstillögu fyrir Laugar í samráði við N1.
Gert er ráð fyrir að forkynna deiliskipulag nú á næstu vikum og í framhaldi af því auglýsa nýtt deiliskipulag. Þegar deiliskipulag hefur verið staðfest er unnt að úthluta lóð til viðbótar fyrir Dalakofann.
Sveitarfélagið er reiðubúið að vinna að úthlutun lóðar sunnan Dalakofans vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar N1 við Dalakofann en leggur áherslu á að svæðið verði nýtt á sem bestan hátt með hagsmuni íbúa, vegfarenda og þjónustuaðila að leiðarljósi. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að yfirfara aðkomu og vegtengingar, göngutengingar og möguleika á uppbyggingu á svæðinu öllu m.t.t. deiliskipulagstillögu fyrir Laugar í samráði við N1.
Gert er ráð fyrir að forkynna deiliskipulag nú á næstu vikum og í framhaldi af því auglýsa nýtt deiliskipulag. Þegar deiliskipulag hefur verið staðfest er unnt að úthluta lóð til viðbótar fyrir Dalakofann.
8.Húsbygging á lóð nr. 4 á Geiteyjarströnd 2, Mývatnssveit.
Málsnúmer 2611040Vakta málsnúmer
Óskað er eftir að greinargerð vegna húsbyggingar á lóð nr 4 á Geiteyjarströnd, á reit ÍB 660 í aðalskipulagi, verði tekin til skoðunar og komið að athugasemdum svo unnt sé að hefja vinnu við fullnaðar hönnun og aðaluppdrátt til byggingargaryfirvalda.
Þá óskast bréf þetta framsent Náttúruverndarstofnun til frekari skoðunar og ákvörðunar.
Þá óskast bréf þetta framsent Náttúruverndarstofnun til frekari skoðunar og ákvörðunar.
Skipulagsfulltrúa falið að óska eftir afstöðumynd og óska eftir áliti og heimild Náttúruverndarstofnunar.
9.Heiðartún Mývatnssveit- byggingaráform - skipulagsmál
Málsnúmer 2606059Vakta málsnúmer
Tekin fyrir að nýju ósk um uppbyggingu í landi Heiðartúns í Mývatnssveit. Fyrir liggja umsagnir Vegagerðar og ISAVIA.
Í staðfestu aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044 segir m.a. um reit L1 "Utan þéttbýlismarka og innan 300 metra frá núverandi íbúðarhúsum, bæjartorfum, virkri atvinnustarfsemi, þjóðvegum eða sveitarfélagsvegum getur sveitarstjórn heimilað byggingu íbúðar- og frístundahúsa án breytingar á aðalskipulagi á grunni deiliskipulags eða að undangenginni grenndarkynningu." Fyrirhuguð uppbygging á svæðinu er því ekki í samræmi við aðalskipulag og er því hafnað.
10.Þeistareykir - hönnun og framkvæmdir við ferðamannastaði
Málsnúmer 2506017Vakta málsnúmer
Lilja Filippustóttir Landslagsarkitekt kemur inn á fundinn og kynnir stöðu hönnunar vegna ferðamannasvæðis á Þeistareykjum.
Skipulagsnefnd þakkar Lilju fyrir greinagóða kynningu. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að á fyrstu stigum hönnunar og framkvæmda verði áhersla lögð á öryggi og umhverfisvernd.
11.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd bókaði á fundi sínum 16. nóvember:
Nefndin vísar drögum að atvinnustefnu og aðgerðaráætlun til umsagnar og yfirferðar í skipulagsnefnd og sveitarstjórn á milli funda.
Nefndin stefnir á að samþykkja atvinnustefnuna á næsta fundi þann 7. desember.
Nefndin vísar drögum að atvinnustefnu og aðgerðaráætlun til umsagnar og yfirferðar í skipulagsnefnd og sveitarstjórn á milli funda.
Nefndin stefnir á að samþykkja atvinnustefnuna á næsta fundi þann 7. desember.
Skipulagsnefnd lýsir ánægju með drög að atvinnustefnu og felur skipulagsfulltrúa að koma á framfæri athugasemdum nefndarinnar varðandi orðalag í aðgerðaráætlun.
Fundi slitið - kl. 12:00.