Umsókn um lóð - við Dalakofann á Laugum
Málsnúmer 2605025
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 49. fundur - 21.05.2026
Málinu frestað til að afla frekari gagna.
Skipulagsnefnd - 50. fundur - 26.05.2026
Skipulagsnefnd veitir N1 vilyrði fyrir stækkun á núverandi lóð á Laugum fyrir fjölorkustöð. Unnið er að deiliskipulagi svæðisins og skipulagsfulltrúa falið að hafa samráð við N1 um fyrirkomulag lóðar og aðkomu. Leitað verði samninga við N1 um aðkomu að breytingu á innviðum. Lóðarúthlutun án uppbyggingar húsnæðis verði til 15 ára og skilmálar settir um hraða uppbyggingar.
Skipulagsnefnd hefur efasemdir um að hleðsla flutningabíla eigi við á þessu svæði og felur skipulagsfulltrúa að hafa samráð við N1 um mögulega staðsetningu slíkrar stöðvar.
Skipulagsnefnd hefur efasemdir um að hleðsla flutningabíla eigi við á þessu svæði og felur skipulagsfulltrúa að hafa samráð við N1 um mögulega staðsetningu slíkrar stöðvar.