Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Hnjúkur afmörkun - merkjalýsing
Málsnúmer 2605024Vakta málsnúmer
Innkomið erindi frá Flosa Gunnarsyni. Um er að ræða merkjalýsingu þar sem verið er að afmarka land Hnjúks úr landi Kvíabóls í Kaldakinn.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptagerð, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Skipulagsnefnd bendir á að samþykki fyrir stofnun lóðar felur á engan hátt í sér vilyrði fyrir framkvæmdum.
2.Dettifoss - umsókn um stöðuleyfi fyrir sölubás
Málsnúmer 2605023Vakta málsnúmer
Rýja ehf óskar eftir stöðuleyfi fyrir sölubás að Dettifossi í landi Reykjahlíðar. Innkomin umsóknarblað og leyfi frá heilbrigðiseftirliti.
Sölustarfsemi mun felast í sölu á veitingum t.d kjötsúpu, plokkfisk, pylsum, kaffi. Sölubásinn verður á staðnum frá 15.maí - 15.sept 2026
Sölustarfsemi mun felast í sölu á veitingum t.d kjötsúpu, plokkfisk, pylsum, kaffi. Sölubásinn verður á staðnum frá 15.maí - 15.sept 2026
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu stöðuleyfis.
3.Dæluhús í Helgavogi - breyting í íbúðarhúsnæði - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2503042Vakta málsnúmer
Umsögn Náttúruverndartofnunar lögð fram . Fyrir fundinn barst einnig umsögn Náttúrufræðistofnunar.
Skipulagsnefnd vill leita leiða til að samræma sjónarmið um náttúruvernd og nýtingu sem fram koma í umsögn Náttúrufræðistofnunar. Starfsmanni falið að ræða við fulltrúa Náttúrufræðistofnunar. Málinu frestað.
4.Þeistareykjavirkjun breyting - umsókn um skipulag
Málsnúmer 2604109Vakta málsnúmer
Fulltrúar frá Landsvirkjun koma inn á fundinn í samræmi við óskir nefndarinnar. Farið var yfir mögulega staðsetningu gufulagna og framtíðar áform Landsvirkjunar á Þeistareykjum. Einnig var farið mögulega endurskoðun deiliskipulagsins í heild.
Skipulagsnefnd samþykkir að Landsvirkjun vinni óverulega breytingu á deiliskipulagi vegna aðlögunar að lagnaleiðum innan Þeistareykjasvæðis skv. framlögðum gögnum.
5.Laugavellir - gróðurhús
Málsnúmer 2604133Vakta málsnúmer
Helga Skúladóttir sækir um heimild til að setja upp gróðurhús við hlöðuna á Laugavöllum. Gróðurhúsið er 8x20m og verður komið fyrir ofan á malarpúða. Umrætt svæði er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir gögnum til grenndarkynningar og grenndarkynna fyrir Laugabergi, Laugabrekku, Stórulaugum, Laugagerði, og Lækjarás í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
6.Laugar í Reykjadal - umsókn um lóð
Málsnúmer 2510048Vakta málsnúmer
Málinu frestað til að afla frekari gagna.
7.Umsókn um lóð - við Dalakofann á Laugum
Málsnúmer 2605025Vakta málsnúmer
Málinu frestað til að afla frekari gagna.
8.Vatnajökulsþjóðgarður - viðauki við stjórnunar- og verndaráætlun - Austurafrétt Bárðdæla
Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer
Lögð fram umsagnarbeiðini frá Náttúruverndarstofnun vegna Vatnajökulsþjóðgarðs og viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Austurafrétt Bárðdæla. Það sem um ræðir er svæði sem bættust við Vatnajökulsþjóðgarð 2021, nefnt Austurafrétt Bárðdæla og er hluti þjóðlendu innan Þingeyjarsveitar austan Skjálfandafljóts.
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn hefur þegar fjallað um málið og gerir ekki athugasemdir.
9.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis
Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer
Haldnir hafa verið þrír fundir vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Mývatns og Laxár. Fundur í samráðshópi 17. mars sl. Íbúafundur 21. apríl sl. og fundur í starfshópi 12. maí sl.
Öll gögn vegna vinnunnar má nálgast á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar https://www.nattura.is/myvatn-og-laxa.
Gögn frá fundunum lögð fram til kynningar og umræðu. Unnið er að gerð verkefnalýsingar og óskað er yfirlesturs og ábendinga nefndarmanna á drögum.
Öll gögn vegna vinnunnar má nálgast á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar https://www.nattura.is/myvatn-og-laxa.
Gögn frá fundunum lögð fram til kynningar og umræðu. Unnið er að gerð verkefnalýsingar og óskað er yfirlesturs og ábendinga nefndarmanna á drögum.
10.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
HMS hefur farið yfir framlögð gögn og bendir á eftirfarandi atriði sem bregðast þarf við
og/eða lagfæra áður en stofnunin staðfestir aðalskipulagið.
og/eða lagfæra áður en stofnunin staðfestir aðalskipulagið.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna drög að svörum við athugasemdum HMS í samráði við ráðgjafa og boða til aukafundar skipulagsnefndar nk. miðvikudag kl 10.
Fundi slitið.