Fara í efni

Dæluhús í Helgavogi, breyting í íbúðarhúsnæði - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2503042

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 34. fundur - 19.03.2025

Sótt er um að breyta skráningu dæluhússins í Helgavogi L206740 úr aðstöðuhúsi í íbúðarhús.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið en með tilliti til viðkvæmrar staðsetningar verði sett nánari skilyrði við breyttri skráningu hússins þar á meðal varðandi fráveitu, vegtengingu og lóðarfrágang með vísan í grein 17. í reglugerð 665/2012 um verndun Mývatns og Láxár. Gera skal grein fyrir áðurnefndum atriðum á Aðaluppdráttum. Frekari uppbygging á lóðinni verði óheimil. Leita skal leyfis Náttúruverndarstofnunar með vísan í 17.gr áðurnefndar reglugerðar.
Málið verður tekið aftur fyrir þegar viðeigandi gögn hafa borist.


Skipulagsnefnd - 47. fundur - 25.03.2026

Innkomnar uppfærðar teikningar eftir Baldur Kristjánsson þar sem hann óskar eftir að breyta aðstöðuhúsi í Helgavogi í íbúðarhús fyrir hönd The little fish company ehf.
Skipulagsnefnd samþykkir að óska eftir umsögn HNE og Náttúruverndarstofnunar. Byggingafulltrúa er falið að breyta skráningu að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Skipulagsnefnd vekur athygli á að fyrri bókun um að öll frekari uppbygging og rask á lóðinni sé óheimil, er í fullu gildi. Heimildir sem almennt fylgja íbúðarhúsum um smáhýsi og slíkt eiga ekki við á þessari lóð.

Skipulagsnefnd - 49. fundur - 21.05.2026

Umsögn Náttúruverndartofnunar lögð fram . Fyrir fundinn barst einnig umsögn Náttúrufræðistofnunar.
Skipulagsnefnd vill leita leiða til að samræma sjónarmið um náttúruvernd og nýtingu sem fram koma í umsögn Náttúrufræðistofnunar. Starfsmanni falið að ræða við fulltrúa Náttúrufræðistofnunar. Málinu frestað.

Skipulagsnefnd - 50. fundur - 26.05.2026

Í framhaldi af umsögn Náttúrufræðistofnunar koma fulltrúar frá Náttúrufræðistofnun og Náttúruverndarstofnun inn á fundinn.



Gestum fundarins þakkað fyrir komuna og góðar umræður. Farið var yfir viðkvæmni náttúru og fuglalífs á svæðinu. Rætt um hvaða sértæku skilmála væri eðlilegt að setja á svæðinu vegna breytrar notkunar og hvernig hægt er að tryggja að slíkir skilmálar haldi. Um er að ræða sérstakar aðstæður þar sem verið er að breyta þegar byggðu mannvirki í íbúðarhús, alveg á vatnsbakka Mývatns þar sem verndargildi er mjög hátt og hætta á raski á lífríki mikil.
Skipulagsnefnd heimilar tímabundna búsetu á svæðinu í eitt ár með þeim skilmálum að húseigandi láti vinna deiliskipulag þar sem settar verða fram takmarkanir um uppbyggingu og fráveitu í samræmi við bókanir nefndarinnar og að óheimilt sé að vera með rekstur og sölu gistingar í húsinu og sértækar umgengnisreglur í samráði við Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsnefnd beinir því til Náttúruverndarstofnunar að setja upp skilti á svæðinu með tilmælum um umgengni.
Skipulagsfulltrúa falið að koma á fundi með húseigendum og fulltrúa Náttúruverndarstofnunar til að fara yfir málið.
Getum við bætt efni þessarar síðu?