Skipulagsnefnd
Dagskrá
Engar athugasemdir voru gerðar við boðun fundarins.
1.Björg III - merkjalýsing undir íbúðarhús
Málsnúmer 2605038Vakta málsnúmer
Hákon Jensson leggur inn merkjalýsingu fyrir lóð undir nýtt íbúðarhús að Björgum III. Um er að ræða afmörkum á lóðinni og skipt í tvo hluta.
Jóna Björg vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptagerð, enda samræmist hún skipulagsáætlunum og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist.
Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Nefndin bendir á að samþykkt lóðamarka felur ekki á neinn hátt í sér samþykki til framkvæmda á lóðinni.

2.Jarðböðin - breytt afmörkun byggingarreits - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2605040Vakta málsnúmer
Jarðböðin óska eftir heimild til breytingar á afmörkun á byggingarreit B1 í deiliskipulagi fyrir jarðböðin. Breytingin felur því í sér stækkun og hliðrun á byggingarreit B1 við baðlónið án aukins byggingarmagns, auk þess sem heimild er bætt við fyrir litlar byggingar tengdar böðunum á byggingarreit B2, svo sem gufubað, upplifunarrými, salerni og tækni- og þjónusturými. Að öðru leyti gilda eldri skipulagsskilmálar.
Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deilisikipulagi skv. framlögðum gögnum með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
3.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
Lagðar fram tillögur að svörum við umsögn HMS.
Skipulagsfulltrúa falið að uppfæra skjalið í samræmi við umræður á fundinum. Málinu vísað til sveitarstjórnar.
4.Dæluhús í Helgavogi - breyting í íbúðarhúsnæði - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2503042Vakta málsnúmer
Í framhaldi af umsögn Náttúrufræðistofnunar koma fulltrúar frá Náttúrufræðistofnun og Náttúruverndarstofnun inn á fundinn.
Gestum fundarins þakkað fyrir komuna og góðar umræður. Farið var yfir viðkvæmni náttúru og fuglalífs á svæðinu. Rætt um hvaða sértæku skilmála væri eðlilegt að setja á svæðinu vegna breytrar notkunar og hvernig hægt er að tryggja að slíkir skilmálar haldi. Um er að ræða sérstakar aðstæður þar sem verið er að breyta þegar byggðu mannvirki í íbúðarhús, alveg á vatnsbakka Mývatns þar sem verndargildi er mjög hátt og hætta á raski á lífríki mikil.
Skipulagsnefnd heimilar tímabundna búsetu á svæðinu í eitt ár með þeim skilmálum að húseigandi láti vinna deiliskipulag þar sem settar verða fram takmarkanir um uppbyggingu og fráveitu í samræmi við bókanir nefndarinnar og að óheimilt sé að vera með rekstur og sölu gistingar í húsinu og sértækar umgengnisreglur í samráði við Náttúruverndarstofnun.
Skipulagsnefnd beinir því til Náttúruverndarstofnunar að setja upp skilti á svæðinu með tilmælum um umgengni.
Skipulagsfulltrúa falið að koma á fundi með húseigendum og fulltrúa Náttúruverndarstofnunar til að fara yfir málið.

5.Grjótagjá - uppbygging innviða skv. samþykktu deiliskipulagi - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2603024Vakta málsnúmer
Fyrir liggur samþykki landeigenda 93,1% úr landi Voga. Við deiliskipulagsgerðina voru haldnir fundir hjá landeigendum, málið sent til afgreiðslu hjá sveitarfélaginu sem auglýsti deiliskipulagið með þeim auglýsingum og athugasemdarfrestum sem löglegir eru og allir geta gert athugasemdir við. Deiliskipulag Grjótagjár var samþykkt í skipulagsnefnd Skútustaðahrepps 15. október 2018 og í sveitarstjórn Skútustaðahrepps 24. október 2018.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi byggt á samþykki 93,1% landeigenda og staðfestu deiliskipulagi. Vísað er til 7. greinar c. 3ja mgr. jarðalaga nr 81/2004 þar sem heimilað er að aukinn meirihluti sameigenda geti tekið ákvörðun sem ekki teljast venjulegar en hvorki teljast óvenjulegar né meiriháttar. Bent er á að um er að ræða framkvæmd í samræmi við gildandi deiliskipulag.
6.Laugar í Reykjadal - umsókn um lóð
Málsnúmer 2510048Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd veitir ON vilyrði fyrir lóð á Laugum fyrir hraðhleðslustöð. Unnið er að deiliskipulagi svæðisins og skipulagsfulltrúa falið að hafa samráð við ON um fyrirkomulag lóðar og aðkomu. Leitað verði samninga við ON um aðkomu að breytingu á innviðum. Lóðarúthlutun án uppbyggingar húsnæðis verði til 15 ára og skilmálar settir um hraða uppbyggingar.
7.Dalakofinn á Laugum - umsókn um lóð
Málsnúmer 2605025Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd veitir N1 vilyrði fyrir stækkun á núverandi lóð á Laugum fyrir fjölorkustöð. Unnið er að deiliskipulagi svæðisins og skipulagsfulltrúa falið að hafa samráð við N1 um fyrirkomulag lóðar og aðkomu. Leitað verði samninga við N1 um aðkomu að breytingu á innviðum. Lóðarúthlutun án uppbyggingar húsnæðis verði til 15 ára og skilmálar settir um hraða uppbyggingar.
Skipulagsnefnd hefur efasemdir um að hleðsla flutningabíla eigi við á þessu svæði og felur skipulagsfulltrúa að hafa samráð við N1 um mögulega staðsetningu slíkrar stöðvar.
Skipulagsnefnd hefur efasemdir um að hleðsla flutningabíla eigi við á þessu svæði og felur skipulagsfulltrúa að hafa samráð við N1 um mögulega staðsetningu slíkrar stöðvar.
8.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis
Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer
Verkefnislýsing vegna Verndaráætlunar Mývatns og Laxár lögð fram til yfirferðar.
Lagt fram til kynningar.
9.Steinholt Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer
Hilmir Freyr Halldórsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi að Steinholti Grímsstöðum. Framkvæmdin var grenndarkynnt frá 28.4. til og með 26.5. Umsögn barst frá Minjastofnun sem gerir ekki athugasemd. Veitur Þingeyjarsveitar gera ekki athugasemd.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist.
Fundi slitið - kl. 13:10.