Jarðböðin - breytt afmörkun byggingarreits - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2605040
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 50. fundur - 26.05.2026
Jarðböðin óska eftir heimild til breytingar á afmörkun á byggingarreit B1 í deiliskipulagi fyrir jarðböðin. Breytingin felur því í sér stækkun og hliðrun á byggingarreit B1 við baðlónið án aukins byggingarmagns, auk þess sem heimild er bætt við fyrir litlar byggingar tengdar böðunum á byggingarreit B2, svo sem gufubað, upplifunarrými, salerni og tækni- og þjónusturými. Að öðru leyti gilda eldri skipulagsskilmálar.
Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deilisikipulagi skv. framlögðum gögnum með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 80. fundur - 28.05.2026
Á 50. fundi skipulagsnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi Jarðböðin - breytt afmörkun byggingareits - breyting á deiliskipulagi:
"Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. framlögðum gögnum með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga."

Ragnhildur og Anna Bragadóttir vöktu athygli á mögulegu vanhæfi sínu.
Sveitarstjórn hafnar vanhæfi Önnu og Ragnhildar.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn hafnar vanhæfi Önnu og Ragnhildar.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.