Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
1.Skipulagsnefnd - 49
Málsnúmer 2605004FVakta málsnúmer
2.Skipulagsnefnd - 50
Málsnúmer 2605006FVakta málsnúmer
Til máls tóku: Gerður, Knútur og Jóna Björg.
Fundargerðin er staðfest af átta fulltrúum sveitarstjórnar, Gerður situr hjá.
3.SSNE - skipan stjórnar og þingfulltrúa
Málsnúmer 2605026Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn vísar erindinu til nýrrar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
4.Héraðsnefnd - vegna slita - tillaga um skiptingu eigna
Málsnúmer 2605031Vakta málsnúmer
Tillaga sveitarstjórnar að skiptingu eigna HNÞ er að HNÞ óski eftir því við HMS að eignaskráning verði lagfærð þannig að fasteignir verði 100% eign Ríkissjóðs eins og þinglýst eignarheimild segir til um.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar ítrekar ósk sína um að eignast Þingey vegna landfræðilegrar legu eyjunnar. Sveitarstjóra falið að koma bókun sveitarstjórnar á framfæri við slitastjórn HNÞ.
Samþykkt samhljóða.
5.Bjarmahlíð - styrkbeiðni
Málsnúmer 2404010Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
6.Bergið headspace - samstarfsamningur
Málsnúmer 2605032Vakta málsnúmer
Upphæð Þingeyjarsveitar vegna tímabilsins 1.7.2026-30.06.2027 (ár 1) er 237.243, 260.055 á ári 2 og 282.867 á ári 3. Upphæð ársins rúmast innan fjárheimilda ársins.
Samþykkt samhljóða.
7.Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - fjölgum íbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað - stofnframlög
Málsnúmer 2506053Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn vísar erindinu til nýrrar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
8.Laugafiskur - vöktunaráætlun
Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
9.Greið leið ehf. - Aðalfundur 2026
Málsnúmer 2605037Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
10.Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. - fundargerðir
Málsnúmer 2308033Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
11.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
12.Rekstrar- og fagleg úttekt á skólum
Málsnúmer 2505094Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn þakkar höfundum og vísar skýrslunni til nýrrar sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
13.Ástand hitaveitu frá Reykjahlíð í Álftagerði
Málsnúmer 2603037Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn þakkar framkvæmdasviði fyrir framlögð gögn og felur sviðsstjóra umhverfis og framkvæmdasviðs að vinna gögnin áfram í samræmi við afgreiðslu Framkvæmda og veitunefndar frá 30.04 sl. Sviðsstjóra er einnig falið að kostnaðarmeta nýlagnir annars vegar frá Reykjahlíð að Vogum og hins vegar frá Hótel Laxá að Álftagerði.
Samningsdrög frá 2020 eru ekki hagfelld fyrir Veitustofnun út frá þeim útreikningum sem liggja fyrir og ítrekar sveitarstjórn tillögur að lausn sbr. erindi til landeigenda sent þann 30.3.2026.
Sveitarstjórn telur að aðkallandi endurnýjunarframkvæmdir á stofnlögn frá Reykjahlið að Vogum hvíli á því að samningar náist um kaup og dreifingu á heitu vatni svo rekstrarforsendur Veitustofnunar séu fyrirsjáanlegar. Sveitarstjóra falið að kynna landeigendum niðurstöðu sveitarstjórnar.
Samþykkt með atkvæðum Knúts, Gerðar, Önnu, Úllu, Ragnhildar, Árna Péturs og Jónu Bjargar. Haraldur og Eyþór greiða atkvæði á móti.
14.Vatnajökulsþjóðgarður - viðauki við stjórnunar- og verndaráætlun - Austurafrétt Bárðdæla
Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
15.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
"Skipulagsfulltrúa falið að uppfæra skjalið í samræmi við umræður á fundinum. Málinu vísað til sveitarstjórnar."
Sveitarstjórn staðfestir tillögu skipulagsnefndar að svörum til HMS og felur skipulagsfulltrúa að koma svörum á framfæri.
Samþykkt samhljóða.
16.Jarðböðin - breytt afmörkun byggingarreits - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2605040Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. framlögðum gögnum með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga."
Sveitarstjórn hafnar vanhæfi Önnu og Ragnhildar.
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og samþykkir breytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða.
17.Skýrsla sveitarstjóra
Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer
18.Ungmennaþing SSNE 2026
Málsnúmer 2604121Vakta málsnúmer
19.Skýrsla kjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
Málsnúmer 2605044Vakta málsnúmer
20.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026
Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer
21.SSNE - þinggerð ársþings 2026
Málsnúmer 2605027Vakta málsnúmer
22.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir
Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer
23.Samtök orkusveitarfélaga - fundargerðir
Málsnúmer 2311142Vakta málsnúmer
24.Farsældarráð Norðurlands eystra - fundargerðir
Málsnúmer 2512037Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 15:37.
Einnig óskaði oddviti eftir að eftirtöldum málum yrði bætt inn á dagskrá með afbrigðum:
Liður 2 - Fundargerð 50. fundar skipulagsnefndar
Samþykkt samhljóða.
Liður 15 - Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Samþykkt samhljóða.
Liður 16 - Jarðböðin - breytt afmörkun byggingareits - breyting á deiliskipulagi
Samþykkt samhljóða.
Liður 17. Skýrsla sveitarstjóra
Samþykkt samhljóða.
Liður 19 - Skýrsla kjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
Samþykkt samhljóða.