Fara í efni

SSNE - skipan stjórnar og þingfulltrúa

Málsnúmer 2605026

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 80. fundur - 28.05.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá SSNE er varðar skipan stjórnar og þingfulltrúa í upphafi nýs kjörtímabils.
Til máls tók: Jóna Björg.

Sveitarstjórn vísar erindinu til nýrrar sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 82. fundur - 25.06.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá SSNE dagsett 17. maí sl. er varðar skipan stjórnar og þingfulltrúa SSNE.

Samkvæmt 4.1. gr. samþykkta Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) ber sveitarstjórn að skipa fulltrúa í stjórn samtakanna í upphafi nýs kjörtímabils. Samkvæmt ákvæðinu skipar hvert aðildarsveitarfélag einn fulltrúa í stjórn SSNE og annan til vara, nema Akureyrarbær sem skipar tvo fulltrúa og tvo til vara. Stjórn skal skipuð til fjögurra ára. Jafnframt er minnt á skipan þingfulltrúa á þing SSNE samkvæmt 3.2. gr. samþykktanna. Þingfulltrúar eru skipaðir til fjögurra ára í upphafi kjörtímabils sveitarstjórna. Kjörgengir sem þingfulltrúar eru kjörnir sveitarstjórnarmenn, varamenn þeirra og framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaga. Við skipan þeirra skal einnig gæta að jöfnum hlut kynja. Miðað við íbúafjölda Þingeyjarsveitar ber sveitarfélaginu að skipa 3 þingfulltrúa og 3 til vara.
Í samræmi við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á kjörtímabilinu eru eftirtaldir aðilar skipaðir sem fulltrúar í stjórn SSNE á tímabilinu:

Aðalfulltrúi:
Knútur Emil Jónasson

Varafulltrúi:
Soffía Kristín Jónsdóttir

Ársþing SSNE
Aðalfulltrúar:
Knútur Emil Jónasson
Nanna Marteinsdóttir
Eyþór Kári Ingólfsson
Varafulltrúar:
Dóra Rún Kristjánsdóttir
Freydís Anna Ingvarsdóttir
Anna Bragadóttir


Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?