Fara í efni

Héraðsnefnd - vegna slita - tillaga um skiptingu eigna

Málsnúmer 2605031

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 80. fundur - 28.05.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur tillaga um skiptingu eigna Héraðsnefndar Þingeyinga en aðildarsveitarfélögin samþykktu slit nefndarinnar á vormánuðum 2024. Á fundi framkvæmdastjórnar HNÞ þann 8.7. 2024 var skipað í skiptastjórn Héraðsnefndar Þingeyinga bs í samræmi við ákvæði 5.mgr.95.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Til máls tóku: Árni Pétur, Jóna Björg, Gerður og Knútur.

Tillaga sveitarstjórnar að skiptingu eigna HNÞ er að HNÞ óski eftir því við HMS að eignaskráning verði lagfærð þannig að fasteignir verði 100% eign Ríkissjóðs eins og þinglýst eignarheimild segir til um.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar ítrekar ósk sína um að eignast Þingey vegna landfræðilegrar legu eyjunnar. Sveitarstjóra falið að koma bókun sveitarstjórnar á framfæri við slitastjórn HNÞ.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?