Fara í efni

Ástand hitaveitu frá Reykjahlíð í Álftagerði

Málsnúmer 2603037

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 75. fundur - 12.03.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Ólöfu Hallgrímsdóttur er varðar ástand hitaveitulagna frá Reykjahlíð í Álftagerði.
Til máls tóku: Árni Pétur og Arnór.

Langvarandi samningsleysi á milli sveitarfélagsins og landeigenda í Vogum frá 1992 um afhendingu vatns og endurgjald fyrir heitt vatn hefur m.a. leitt til þess að viðhaldsþörf hefur hlaðist upp. Um það verður ekki deilt að núverandi ástand hitaveitulagna á leiðinni Reykjahlíð - Vogar er ekki viðunandi og nauðsyn er að fara í framkvæmdir eins fljótt og hægt er. Þó skal haft í huga að rekstur hitaveitu er ekki eitt af lögbundnum verkefnum sveitarfélaga og við vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 þurfti því miður að skera niður áætlaða fjárveitingu til hitaveitunnar þar sem önnur lögbundin verkefni gengu fyrir.
Rekstur hitaveitu þarf að standa undir sér. Því ættu það að vera sameiginlegir hagsmunir allra notenda og eiganda hitaveitunnar að reka hitaveitu sem getur staðið undir nauðsynlegri endurnýjun. Þarna þarf að skilja á milli eigenda hitaorku annars vegar og svo notenda vatns frá dreifikerfi hinsvegar, líkt og hefur verið gert í samningi á milli sveitarfélagsins og eigenda heitavatnsréttinda Reykjahlíðar.
Sveitarstjórn þakkar erindið og felur sveitarstjóra og framkvæmda- og veitunefnd að funda með bréfritara sem fyrst og kynna niðurstöðu þess fundar á næsta sveitarstjórnarfundi 25. mars.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 76. fundur - 25.03.2026

Á síðasta fundi sveitarstjórnar var sveitarstjóra ásamt framkvæmda- og veitunefnd falið að funda með Ólöfu Hallgrímsdóttur vegna ástands hitaveitu frá Reykjahlíð í Álftagerði.
Fundur getur ekki orðið fyrr en eftir 9. apríl vegna fjarveru bréfritara. Bréfritari fær sent bréf með tillögum sveitarstjórnar um mögulega lausn ágreinings um stöðu hitaveitu í Vogum, til skoðunar fram að fyrirhuguðum fundi.
Samþykkt með 8 atkvæðum. Halldór greiðir atkvæði á móti.
Getum við bætt efni þessarar síðu?