Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
1.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 29
Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer
2.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 34
Málsnúmer 2603004FVakta málsnúmer
3.Ungmennaráð - fundargerðir
Málsnúmer 2512055Vakta málsnúmer
4.Skipulagsnefnd - 47
Málsnúmer 2603006FVakta málsnúmer
5.Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. - fundargerðir
Málsnúmer 2308033Vakta málsnúmer
6.Skýrsla sveitarstjóra
Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer
7.Hundahald - brot á samþykktum
Málsnúmer 2208011Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
8.Þurrkur ehf - aðalfundur 2026
Málsnúmer 2602062Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkti vanhæfi Jónu Bjargar samhljóða.
Jóna Björg víkur af fundi kl. 14:33
Sveitarstjórn samþykkir að Atvinnuefling Þingeyjarsveitar nýti forkaupsrétt sinn með þátttöku í hlutafjáraukingu Þurrks ehf fyrir 13,2% af nýju hlutafé eða fyrir kr. 528.000 og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að tilkynna þáttökuna.
Samþykkt samhljóða.
Jóna Björg kemur inn á fund kl. 14:34
9.Sveitarstjórnarkosningar 2026 - samstarf vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Málsnúmer 2603048Vakta málsnúmer
Að þessu sinni hefur embættið ákveðið að gefa kjörstjórnum ofangreindra sveitarfélaga kost á því að afhenda sýslumanni kjörkassa til notkunar vegna atkvæðagreiðslu kjósenda viðkomandi sveitarfélaga á völdum kjörstöðum embættisins. Vonast er til að þetta fyrirkomulag gagnist bæði kjósendum og kjörstjórnum sveitarfélaganna, en eins og kunnugt er hefur kjósendum í sveitarstjórnakosningum, sem greiða atkvæði utan kjörfundar, að jafnaði verið leiðbeint um að annast sjálfir flutning og afhendingu atkvæðis síns til viðkomandi kjörstjórnar/sveitarfélags.
10.Sveitarstjórnarkosningar 2026 - atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Málsnúmer 2603049Vakta málsnúmer
Þar með er ósk sveitarstjórnar nú forsenda skipunar kjörstjóra sýslumanns og bendir sýslumáður á að ef standi vilji sveitarstjórna til áframhaldandi samstarfs óskar hann staðfestingar á því, svo fljótt sem verða má.
11.Bárðarborg ehf - aðalfundur 2026
Málsnúmer 2603058Vakta málsnúmer
12.Íþrótta- og æskulýðsstarf - fyrri úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2602053Vakta málsnúmer
"Nefndin þakkar umsóknirnar og leggur til eftirfarandi styrkveitingar: Umf. Bjarmi kr. 150.000 til uppbyggingar píluaðstöðu, Umf.Efling kr. 210.000 til húsaleigu og endurnýjun áhalda, Hjörvar Þór Hnikarsson kr. 135.000 vegna þáttöku með U17 landsliði Íslands í blaki, Jón Andri Hnikarsson kr. 135.000 vegna þátttöku í U19 landsliði Íslands í blaki, Frjálsíþróttafélag HSÞ kr. 170.000 vegna þátttöku í Gautaborgarleikunum í frjálsíþróttum í júní 2026. Að auki leggur nefndin til að gerður verði samstarfssamningur við Skákfélagið Goðann. Nefndin beinir því til sveitarstjórnar að semja við Framhaldsskólann á Laugum varðandi notkun íþróttafélaga á íþróttaaðstöðu framhaldsskólans í þágu íbúa sveitarfélagsins."
Sveitarstjórn felur verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála að útfæra samstarfssamning við Skákfélagið Goðann.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að hefja viðræður við FL um mögulega notkun íþróttafélaga á íþróttaaðstöðu Framhaldsskólans á Laugum í þágu íbúa sveitarfélagsins.
13.Menningarmál - fyrri úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2602052Vakta málsnúmer
"Nefndin þakkar fyrir allar umsóknir sem bárust og fagnar gróskumiklu menningarstarfi og hugmyndum í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að Marimbanemendur Þingeyjarskóla fái styrkveitingu að upphæð kr. 300.000, Leikdeild Eflingar fái styrkveitingu að upphæð kr. 300.000 og Karlakórinn Hreimur fái styrkveitingu að upphæð kr. 200.000. Jafnframt leggur nefndin til að umsókn um Eyðibyggð í afdölum Fnjóskadals fái sér umfjöllun í sveitarstjórn með hliðsjón af fyrra verkefni Minjastofnunar sem vísað er í í umsókninni. Nefndin leggur einnig til að gerður verði samstarfssamningur við leikdeild Eflingar og felur verkefnastjóra að hafa umsóknina til hliðsjónar í samstarfssamningi sem fyrirhugað er að gera við Umf. Eflingu."
Afgreiðslu umsóknar um styrk til fornleifarannsókna í eyðibyggðum Fjóskadals er frestað til næsta fundar.
Sveitarstjórn felur verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála að útfæra samstarfssamning við leikdeild Eflingar.
Samþykkt samhljóða.
14.Vinnuskóli - sumarstörf ungmenna
Málsnúmer 2603038Vakta málsnúmer
"Nefndin þakkar erindið en telur sig ekki hafa forsendur til þess að taka afstöðu til þess. Nefndin vísar málinu áfram til sveitarstjórnar."
Samþykkt samhljóða.
15.Frá ungmennaráði - opnunartími íþróttahúss
Málsnúmer 2603061Vakta málsnúmer
"Nemendur Þingeyjarskóla óska eftir því að opnunartími íþróttahúss, sundlaugar
og ræktar á Laugum verði breytt í samræmi við komu skólabíla úr Þingeyjarskóla
á virkum dögum og einnig að um helgar verði opið lengur og sundlaugin opin
lengur fram á kvöldið.
Bókun fundar: Ungmennaráð styður þessar óskir. Samþykkt.
Fyrir fundinum liggur kostnaðaráætlun við aukinn opnunartíma sem er metin á um 5,5 mkr yfir 40 vikna tímabil.
16.Mýsköpun ehf. - aðalfundarboð
Málsnúmer 2603062Vakta málsnúmer
17.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið - umsögn 56. mál - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks
Málsnúmer 2603022Vakta málsnúmer
18.Ástand hitaveitu frá Reykjahlíð í Álftagerði
Málsnúmer 2603037Vakta málsnúmer
Samþykkt með 8 atkvæðum. Halldór greiðir atkvæði á móti.
19.Stórutjarnaskóli - Starfsemi Tjarna á starfstíma skóla
Málsnúmer 2603064Vakta málsnúmer
20.Fyrir sveitarstjórn liggja drög að reglum um styrki til framboða til sveitarstjórnarkosningar.
Málsnúmer 2603065Vakta málsnúmer
21.Þingeyjarsveit - tilkynning um fyrirhugaðar niðurfellingar vega af vegaskrá
Málsnúmer 2511044Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að taka breyttar vegskráningar upp í samtali við Vegagerðina ásamt fleiri málum sem snúa að ástandi vega og umsjón."
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
22.Gerði Laugum, Eigandi óskar eftir stækkun á lóð.
Málsnúmer 2601044Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd samþykkir að láta vinna merkjalýsingu og breyta lóðamörkum í samræmi við ósk lóðarhafa. Málinu vísað til sveitarstjórnar."
23.Janusarverkefni - heilsuefling eldri borgara
Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer
"Nefndin er afar hlynnt verkefninu og felur sviðsstjóra að taka saman minnisblað í samræmi við umræður á síðustu fundum. Nefndin vísar málinu til ákvarðanatöku í sveitarstjórn."
Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með þann undirbúning sem farið hefur fram og samþykkir að taka "pakka 2" sem inniheldur mælingar, heilsuappið, fræðslu, innheimtu gjalda og æfingakerfi Janusar heilsueflingar. Sveitarstjórn samþykkir að verkefnið hefjist í ágúst 2026 gerður verði samningur til tveggja ára. Verkefnið flokkast undir liðinn heilsueflandi samfélag og bókast á 06290.
24.Friðrik K. Jakobsson - umsagnarbeiðni rekstrarleyfis gistingar í flokki II vegna bústaðar í Hvoli
Málsnúmer 2601043Vakta málsnúmer
25.Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - fundargerðir
Málsnúmer 2307011Vakta málsnúmer
26.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir
Málsnúmer 2311077Vakta málsnúmer
27.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026
Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer
28.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir
Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer
29.Farsældarráð Norðurlands eystra - fundargerðir
Málsnúmer 2512037Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 14:56.
Einnig óskaði oddviti eftir að bæta eftirtöldum liðum á dagskrá fundarins með afbrigðum:
Liður 4 - Fundargerð skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Liður 5 - Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. - fundargerðir.
Samþykkt samhljóða.
Liður 16 - Mýsköpun ehf. - aðalfundarboð.
Samþykkt samhljóða.
Liður 17 - Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið - umsögn um 56. mál. Flýting innviða og einföldun regluverks.
Samþykkt samhljóða.
Liður 18 - Ástand hitaveitu frá Reykjahlíð í Álftagerði.
Samþykkt samhljóða.
Liður 19 - Stórutjarnaskóli - Starfsemi Tjarna á starfstíma skóla.
Samþykkt samhljóða.
Liður 20. - Reglur um styrki til framboða við sveitarstjórnarkosningar.
Samþykkt samhljóða.
Liður 21. - Þingeyjarsveit - tilkynning um fyrirhugaðar niðurfellingar vega af vegaskrá.
Samþykkt samhljóða.
Liður 22. - Gerði, Laugum. Eigandi óskar eftir stækkun á lóð.
Samþykkt samhljóða.