Fara í efni

Menningarmál - fyrri úthlutun styrkja 2026

Málsnúmer 2602052

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 29. fundur - 17.03.2026

Auglýst var eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarstarfs í febrúar.
Nefndin þakkar fyrir allar umsóknir sem bárust og fagnar gróskumiklu menningarstarfi og hugmyndum í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að Marimbanemendur Þingeyjarskóla fái styrkveitingu að upphæð kr. 300.000, Leikdeild Eflingar fái styrkveitingu að upphæð kr. 300.000 og Karlakórinn Hreimur fái styrkveitingu að upphæð kr. 200.000. Jafnframt leggur nefndin til að umsókn um Eyðibyggð í afdölum Fnjóskadals fái sér umfjöllun í sveitarstjórn með hliðsjón af fyrra verkefni Minjastofnunar sem vísað er í í umsókninni. Nefndin leggur einnig til að gerður verði samstarfssamningur við leikdeild Eflingar og felur verkefnastjóra að hafa umsóknina til hliðsjónar í samstarfssamningi sem fyrirhugað er að gera við Umf. Eflingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?