Fara í efni

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit

29. fundur 17. mars 2026 kl. 14:00 - 16:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Ósk Helgadóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Halldór Þorlákur Sigurðsson
  • Úlla Árdal
  • Olga Hjaltalín Ingólfsdóttir
Starfsmenn
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
Fundargerð ritaði: Gunnhildur Hinriksdóttir
Dagskrá

1.Þingeyjarsveit - Hvati - Rafrænn frístundastyrkur

Málsnúmer 2512043Vakta málsnúmer

Frístundastyrkur sveitarfélagsins er nú rafrænn. Taka þarf umræðu um notkun hans utan sveitarfélagsins
Nefndin felur verkefnastjóra að hafa samband við félög sem rætt var um á fundinum og gera samninga varðandi nýtingu frístundastyrks. Sá listi er ekki tæmandi og hægt að bæta við fleiri félögum eftir óskum.

2.Vinnuskóli - ungmenni

Málsnúmer 2603038Vakta málsnúmer

Erindi frá Oddný Láru Guðnadóttur varðandi sumarstörf ungmenna
Nefndin þakkar erindið en telur sig ekki hafa forsendur til þess að taka afstöðu til þess. Nefndin vísar málinu áfram til sveitarstjórnar.

3.Maður er manns gaman - lokaskýrsla og umsókn um styrk til afnota af Skjólbrekku

Málsnúmer 2602044Vakta málsnúmer

Fyrir Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd liggur skýrsla verkefnisins Maður er manns gaman og umsókn um styrk fyrir afnot af Skjólbrekku frá Önnu Dagbjörtu Andrésdóttur sem barst gegnum Þjónustugátt 16. febrúar s.l.
Nefndin þakkar Önnu Dagbjörtu fyrir greinargóða skýrslu og öflugt starf og hvetur hana til áframhaldandi verka. Nefndin tekur vel í erindið og felur verkefnastjóra að hafa það í huga við gerð samstarfssamnings við Mývetning.

4.Menningarmál - fyrri úthlutun styrkja 2026

Málsnúmer 2602052Vakta málsnúmer

Auglýst var eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarstarfs í febrúar.
Nefndin þakkar fyrir allar umsóknir sem bárust og fagnar gróskumiklu menningarstarfi og hugmyndum í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að Marimbanemendur Þingeyjarskóla fái styrkveitingu að upphæð kr. 300.000, Leikdeild Eflingar fái styrkveitingu að upphæð kr. 300.000 og Karlakórinn Hreimur fái styrkveitingu að upphæð kr. 200.000. Jafnframt leggur nefndin til að umsókn um Eyðibyggð í afdölum Fnjóskadals fái sér umfjöllun í sveitarstjórn með hliðsjón af fyrra verkefni Minjastofnunar sem vísað er í í umsókninni. Nefndin leggur einnig til að gerður verði samstarfssamningur við leikdeild Eflingar og felur verkefnastjóra að hafa umsóknina til hliðsjónar í samstarfssamningi sem fyrirhugað er að gera við Umf. Eflingu.

5.Íþrótta- og æskulýðsstarf - fyrri úthlutun styrkja 2026

Málsnúmer 2602053Vakta málsnúmer

Auglýst var eftir styrkjum til íþrótta- og æskulýðsstarf í febrúar
Nefndin þakkar umsóknirnar og leggur til eftirfarandi styrkveitingar: Umf. Bjarmi kr. 150.000 til uppbyggingar píluaðstöðu, Umf.Efling kr. 210.000 til húsaleigu og endurnýjun áhalda, Hjörvar Þór Hnikarsson kr. 135.000 vegna þáttöku með U17 landsliði Íslands í blaki, Jón Andri Hnikarsson kr. 135.000 vegna þátttöku í U19 landsliði Íslands í blaki, Frjálsíþróttafélag HSÞ kr. 170.000 vegna þátttöku í Gautaborgarleikunum í frjálsíþróttum í júní 2026. Að auki leggur nefndin til að gerður verði samstarfssamningur við Skákfélagið Goðann. Nefndin beinir því til sveitarstjórnar að semja við Framhaldsskólann á Laugum varðandi notkun íþróttafélaga á íþróttaaðstöðu framhaldsskólans í þágu íbúa sveitarfélagsins.

6.Ungmennaráð - fundargerðir

Málsnúmer 2512055Vakta málsnúmer

Verkefnastjóra æskulýðs-, íþrótta og tómstundamála var falið að rýna og kostnaðarmeta tillögur Ungmennaráðs varðandi opnunartíma sundlaugar á Laugum og leggja fyrir íþrótta-, tómstunda og menningarnefnd.
Nefndin tekur jákvætt í erindi ungmennaráðs og þakkar verkefnastjóra fyrir greinargóða yfirferð. Nefndin hvetur sveitarstjórn til þess að lengja opnunartíma sundlaugar á Laugum til að mæta óskum nemenda, sérstaklega á virkum dögum.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?