Fara í efni

Frá ungmennaráði - opnunartími íþróttahúss

Málsnúmer 2603061

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 76. fundur - 25.03.2026

Á 2. fundi ungmennaráðs Þingeyjarsveitar var eftirfarandi samþykkt undir lið 6.a. - Önnur mál:

"Nemendur Þingeyjarskóla óska eftir því að opnunartími íþróttahúss, sundlaugar

og ræktar á Laugum verði breytt í samræmi við komu skólabíla úr Þingeyjarskóla

á virkum dögum og einnig að um helgar verði opið lengur og sundlaugin opin

lengur fram á kvöldið.

Bókun fundar: Ungmennaráð styður þessar óskir. Samþykkt.

Fyrir fundinum liggur kostnaðaráætlun við aukinn opnunartíma sem er metin á um 5,5 mkr yfir 40 vikna tímabil.
Sveitarstjórn þakkar ábendingu ungmennaráðs og samþykkir lengda opnun sundlaugar á Laugum á virkum dögum út þetta skólaár, í samræmi við framlagða kostnaðaráætlun. Þessi lenging á opnunartíma verði endurskoðuð fyrir næsta skólaár m.t.t. nýtingar.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 30. fundur - 12.05.2026

Verkefnastjóri gefur yfirlit yfir nýtingu aukins opnunartíma í sundlaugar á Laugum í aprílmánuði.
Nefndin lýsir ánægju með nýtingu sundlaugar og ræktar á Laugum með lengdum opnunartíma.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 32. fundur - 18.08.2026

Sveitarstjórn samþykkti lengda opnun sundlaugar og íþróttahúss á Laugum í apríl 2026 og út skólaárið sem skyldi endurskoðuð fyrir nýtt skólaár m.t.t. nýtingar.
Nefndin leggur til að þessi lengda opnun haldi áfram út veturinn. Óskað er eftir að skráningar verði nákvæmari svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun varðandi áframhald eftir veturinn. Miðað við framlögð gögn virðist nýtingin við þessa aukaopnun vera sambærileg við meðalopnunartíma sundlaugar og ræktar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?