Fara í efni

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit

30. fundur 12. maí 2026 kl. 14:00 - 16:50 í Þingey
Nefndarmenn
  • Ósk Helgadóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson
  • Úlla Árdal
  • Olga Hjaltalín Ingólfsdóttir
Starfsmenn
  • Hjördís Sigríður Albertsdóttir
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
Fundargerð ritaði: Gunnhildur Hinriksdóttir
Dagskrá
Formaður setur fund kl 14:02 og óskar eftir því að eftirfarandi mál verði tekið með afbrigðum

nr. 6. Fræðasetur um forystufé - minnisvarði um sauðinn Eitil - ósk um samstarf og styrk

Samþykkt

1.Menningarverðlaun Þingeyjarsveitar 2026

Málsnúmer 2605006Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndd auglýsti eftir tilnefningum til menningarverðlauna Þingeyjarsveitar þann 1. apríl sl. Frestur til að tilnefna var til 1. maí.
Nefndinni bárust sjö tilnefningar til menningarverðlauna Þingeyjarsveitar. Nefndin hefur komist að niðurstöðu um handhafa verðlaunanna í ár sem verða afhent við hátíðarhöld þann 17. júní.

2.Félagsmiðstöðvar Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2312051Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri ÆTM-mála hefur unnið drög að umgjörð varðandi félagsmiðstöðvastarf. Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd er falið að koma með athugasemdir og/eða frekari tillögur.
Nefndin fór yfir drögin og lagði til örlitlar breytingar en leggur annars til að verkefnastjóri kynni innihald skjalsins fyrir hlutaðeigandi.

3.Almenningssamgöngur - samningur um styrk verkefna

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Þingeyjarsveit hlaut styrk til þess að koma á tómstundaakstri í sveitarfélaginu, í félagsmiðstöðvastarf til að byrja með. Verkefnastjóri ÆTM-mála hefur gert drög að strætóleiðum m.v. umræður á 4. fundi Ungmennaráðs.
Nefndin fagnar styrkveitingu til akstur í tómstundastörf og felur verkefnastjóra að vinna málið áfram. Nefndin leggur til að akstur verði til og frá félagsmiðstöðvastarfi.

4.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn vísaði fyrirliggjandi drögum að samningum íþróttafélaga til umfjöllunar í íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að gengið verið frá þeim hluta samninganna við íþróttafélögin sem snúa að notkun á mannvirkjum sveitarfélagsins.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að vísa frekari samningagerð til nýrrar nefndar íþróttamála og sveitarstjórnar.

5.Ungmennaráð - opnunartími íþróttahúss

Málsnúmer 2603061Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri gefur yfirlit yfir nýtingu aukins opnunartíma í sundlaugar á Laugum í aprílmánuði.
Nefndin lýsir ánægju með nýtingu sundlaugar og ræktar á Laugum með lengdum opnunartíma.

6.Fræðasetur um forystufé - minnisvarði um sauðinn Eitil - ósk um samstarf og styrk

Málsnúmer 2605015Vakta málsnúmer

Fræðasetur um forystufé ætlar að heiðra minningu forystusauðsins Eitils með því að reisa honum minnisvarða. Óskað er eftir aðkomu Þingeyjarsveitar vegna verkefnisins.
Nefndin lýsir ánægju með verkefnið og beinir því til sveitarstjórnar að verða við beiðni Daníels.

Fundi slitið - kl. 16:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?