Fara í efni

Fræðasetur um forystufé - minnisvarði um sauðinn Eitil - ósk um samstarf og styrk

Málsnúmer 2605015

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 30. fundur - 12.05.2026

Fræðasetur um forystufé ætlar að heiðra minningu forystusauðsins Eitils með því að reisa honum minnisvarða. Óskað er eftir aðkomu Þingeyjarsveitar vegna verkefnisins.
Nefndin lýsir ánægju með verkefnið og beinir því til sveitarstjórnar að verða við beiðni Daníels.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 79. fundur - 13.05.2026

Á 30. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi minnisvarða um sauðinn Eitil en fræðasetur um forystufé undir forystu Daníels Hansen hyggst reisa forystusauðnum Eitli minnisvarða en sauðurinn var í eigu Fjalla-Bensa:

"Nefndin lýsir ánægju með verkefnið og beinir því til sveitarstjórnar að verða við beiðni Daníels."
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að kanna mögulega aðkomu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?