Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

79. fundur 13. maí 2026 kl. 14:00 - 15:06 í Þingey
Nefndarmenn
  • Gerður Sigtryggsdóttir
  • Knútur Emil Jónasson
  • Halldór Þorlákur Sigurðsson
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson
  • Arnór Benónýsson
  • Haraldur Bóasson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Einnig óskaði oddviti eftir að eftirtöldum málum yrði bætt inn á dagskrá með afbrigðum.
Liður 1 - Fundargerð 30. fundar íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Liður 2 - Fundargerð 35. fundar umhverfisnefndar
Samþykkt samhljóða.
Liður 4 - Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 2026
Samþykkt samhljóða.
Liður 5 - Fjárhagsáætlun - viðaukar
Samþykkt samhljóða.
Liður 10 - Markaðsstofa Norðurlands - aðalfundur 2026
Samþykkt samhljóða.
Liður 11 - Samband íslenskra sveitarfélaga - landsþing og landsþingsfulltrúar.
Samþykkt samhljóða.
Liður 12 - Tjarnaskjól - Húsbúnaðarkaup
Samþykkt samhljóða.
Liður 13 - Fræðasetur um forystufé - minnisvarði um sauðinn Eitil
Samþykkt samhljóða.
Liður 14. - Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna- íþrótta og æskulýðsfélög
Samþykkt samhljóða.

1.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 30

Málsnúmer 2605002FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 30. fundar íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar frá 12. maí. Fundargerðin er í sex liðum. Liðir 4 og 6 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru sérliðir á fundinum.
Eyþór kynnti fundargerðina.

2.Umhverfisnefnd - 35

Málsnúmer 2605001FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 35. fundar umhverfisnefndar frá 7. maí. Fundargerðin er í tveimur liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Árni Pétur kynnti fundargerðina.

3.Rekstraryfirlit 2026

Málsnúmer 2605016Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar rekstraryfirlit fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins.
Til máls tók: Arnór.

Sveitarstjórn lýsir ánægju með að rekstur aðalsjóðs er í flestum tilfellum vel innan fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.

4.Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 2026

Málsnúmer 2604015Vakta málsnúmer

Þann 17. apríl var starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar auglýst til umsóknar með umsóknarfresti til og með 1. maí. Fjórar umsóknir bárust um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrir fram skilgreind viðmið og vægi. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið.
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Hjördísi S. Albertsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar.

Hjördís hefur gegnt starfi sviðsstjóra fjölskyldusviðs tímabundið frá hausti 2025 en hún var áður skólastjóri Reykjahlíðarskóla. Hjördís er með B.ed. próf í grunnskólakennarafræði og hefur jafnframt lagt stund á MLM nám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst. Hún hefur mikla kennslureynslu ásamt reynslu af stjórnun á hinum ýmsu sviðum skólasamfélagsins. Einnig var hún varaformaður Félags grunnskólakennara á árunum 2018-2021.

Sveitarstjórn býður Hjördísi velkomna til starfa fyrir Þingeyjarsveit.

Samþykkt samhljóða.

5.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu viðauki nr. 3.

Viðaukinn er í fimm liðum og er upphæð hans 12,9 m.kr.

Liður 1 - færist á málaflokk 21 Sameining sveitarfélaga og er vegna skjalafrágangs gömlu hreppanna 1,5 m.kr.

Liður 2 - færist á málaflokk 21 - hreppsskrifstofa. Skýring: Verktakavinna vegna sumarræstingar í Þingey 0,9 m.kr.

Liður 3 - færist á málaflokk 08 - hreinlætismál. Skýring: Ný leið í lífrænu - Innkaup á vélum 6 m.kr.

Liður 4 - Færist á fjárfestingar. Skýring: Húsgagnakaup nýr leikskóli Tjarnaskjóli 3 m.kr.

Liður 5 - færist á fjárfestingar. Skýring: Kaup á landspildu við Smáragrund 1,5 m.kr.

Viðaukinn er fjármagnaður af handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka við fjárhagsáætlun 2026.

Samþykkt samhljóða.

6.Almannavarnarnefnd - fjöldahjálparstöðvar á Norðurlandi

Málsnúmer 2605011Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur framsent erindi Rauða krossinum, Eyjafjarðardeild, varðandi fjöldahjálparstöðvar á Norðurlandi þar sem því er beint til sveitarfélaga á Norðurlandi eystra að taka til skoðunar og skráningar með formlegum hætti, fjöldahjálparstöðvar í sínu umdæmi.
Skilgreindar og skráðar fjöldahjálparstöðvar í Þingeyjarsveit eru þrjár, Reykjahlíðarskóli, Stórutjarnaskóli og Framhaldsskólinn á Laugum. Sveitarstjórn er ávallt tilbúin til viðræðna við Rauða krossinn ef betur má gera.

Samþykkt samhljóða.

7.Ungmennaráð - erindisbréf

Málsnúmer 2209017Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn eru lögð drög að uppfærðu erindisbréfi ungmennaráðs sbr. samþykkt sem gerð var á 4. fundi ungmennaráðs þann 24. apríl sl.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa meðfylgjandi drögum til umfjöllunar í nýrri sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

8.Hesthús Lautum

Málsnúmer 2504018Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu lóðarleigusamningur við Kristján Snæbjörnsson vegna lóðarinnar F2542223 sem er lóðin Lautir - Hesthús á Laugum ásamt kaupsamningi um fasteignina Lautir - Hesthús fnr. 2542223.
Til máls tók: Gerður.

Sveitarstjórn samþykkir sölu á hesthúsi í landi Lauta, F2542223. Einnig samþykkir sveitarstjórn samhljóða lóðarleigusamning vegna lóðarinnar F2542223.

Samþykkt samhljóða.

9.Smáragrund - kaup á landspildu

Málsnúmer 2605017Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu drög að samkomulagi á milli Norðurpóls ehf. og Þingeyjarsveitar um að hluti lóðar Smáragrundar F2163817 verði afmarkaður með merkjalýsingu og verði land í eigu Þingeyjarsveitar. Um er að ræða lóð sem afmarkast af þjóðvegi í vestur, lóð Iðnbæjar í norður og suður að sk. gamla Laugavegi.

Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um kaup á landspildu og felur byggingafulltrúa að ganga frá skjölum þess efnis.

Samþykkt samhljóða.

10.Markaðsstofa Norðurlands - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2605019Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Markaðsstofu Norðurlands. Fundurinn er haldinn þriðjudaginn 26. maí kl. 11:30-12:30 á Hótel Akureyri.
Til máls tók: Ragnhildur.

Sveitarstjórn felur Rakel Hinriksdóttur, starfandi framkvæmdastjóra Mývatnsstofu að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

11.Samband íslenskra sveitarfélaga - landsþing og landsþingsfulltrúar

Málsnúmer 2605018Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar landsþing Sambandsins og val á fulltrúa til setu á landsþingi. Kjörbréf skal berast sambandinu í síðasta lagi 15. júlí n.k.
Til máls tók: Knútur.

Erindinu er vísað til nýrrar sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

12.Tjarnaskjól - húsbúnaðarkaup

Málsnúmer 2605020Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá deildarstjórum Tjarnaskjóls varðandi innkaup á húsbúnaði í nýjan leikskóla. Um er að ræða kostnaðaráætlun sem hljóðar upp á tæplega 3 m.kr.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða kaup á húsgögnum fyrir allt að 3,0 m.kr og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að sjá um kaupin.

Samþykkt samhljóða.

13.Fræðasetur um forystufé - minnisvarði um sauðinn Eitil - ósk um samstarf og styrk

Málsnúmer 2605015Vakta málsnúmer

Á 30. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi minnisvarða um sauðinn Eitil en fræðasetur um forystufé undir forystu Daníels Hansen hyggst reisa forystusauðnum Eitli minnisvarða en sauðurinn var í eigu Fjalla-Bensa:

"Nefndin lýsir ánægju með verkefnið og beinir því til sveitarstjórnar að verða við beiðni Daníels."
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að kanna mögulega aðkomu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

14.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Á 30. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi samninga við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög:

"Nefndin leggur til við sveitarstjórn að gengið verið frá þeim hluta samninganna við íþróttafélögin sem snúa að notkun á mannvirkjum sveitarfélagsins.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að vísa frekari samningagerð til nýrrar nefndar íþróttamála og sveitarstjórnar."
Sveitarstjórn samþykkir þann hluta samninganna sem snýr að notkun mannvirkja sveitarfélagsins og felur verkefnastjóra íþrótta- tómstunda- og æskulýðsmála að útfæra þann hluta. Sveitarstjórn vísar frekari samningagerð til nýrrar nefndar íþróttamála og sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

15.Atvinnuveganefnd Alþingis - umsögn 596. mál - Jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku

Málsnúmer 2605012Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsögn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum um 596. máls atvinnuveganefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um Jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku, jöfnunargjald. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 12. maí nk.
Til máls tók: Jóna Björg.

16.Vatnajökulsþjóðgarður - viðauki við stjórnunar- og verndaráætlun - Austurafrétt Bárðdæla

Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni frá Náttúruverndarstofnun er varðar Vatnajökulsþjóðgarð og viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir austurafrétt Bárðdæla. Umsagnarfrestur er til og með 18. júní n.k.
Til máls tók: Gerður.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir austurafrétt Bárðdæla.

Samþykkt samhljóða.

17.Náttúrustofur - stýrihópur um framtíðarskipulag

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um stofnun stýrihóps um framtíðarskipulag náttúrustofa

18.Gæðastjórnunarfélag Norðurlands - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2605013Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar aðalfundarboð frá Gæðastjórnunarfélagi Norðurlands sem haldinn verður fimmtudaginn 21. maí kl. 12 á veitingarstaðnum Greifanum á Akureyri. Fundurinn verður einnig sendur út á Teams.

19.Norðurorka hf. - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2603069Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð aðalfundar Norðurorku 2026.

20.Stjórn Norðurorku - fundargerðir

Málsnúmer 2305038Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 323. fundar stjórnar Norðurorku hf. frá 5. maí s.l.

21.Almannavarnarnefnd - fundargerð vorfundar ásamt ársreikningi fyrir 2025

Málsnúmer 2605008Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð vorfundar stjórnar Almannavarnarnefndar í umdæmi Lögreglunnar á Norðurlandi eystra frá 5. maí s.l. ásamt ársreikningi.

22.Brák íbúðafélag - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2604031Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð aðalfundar Brákar íbúðafélags 2026 frá 28. apríl s.l.
Til máls tók: Jóna Björg.
Í lok fundar kvaddi Arnór Benónýsson sér hljóðs þar sem þessi fundur er sá síðasti sem hann situr á löngum ferli sem sveitarstjórnarmaður.

Eyþór kvaddi sér einnig hljóðs og lagði til að sveitarstjórn bókaði þakkir til Arnórs fyrir 18 ára störf í þágu sveitarfélaganna.

Samþykkt samhljóða.

Knútur tók einnig til máls.

Fundi slitið - kl. 15:06.

Getum við bætt efni þessarar síðu?