Fara í efni

Samband íslenskra sveitarfélaga - landsþing og landsþingsfulltrúar

Málsnúmer 2605018

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 79. fundur - 13.05.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar landsþing Sambandsins og val á fulltrúa til setu á landsþingi. Kjörbréf skal berast sambandinu í síðasta lagi 15. júlí n.k.
Til máls tók: Knútur.

Erindinu er vísað til nýrrar sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 82. fundur - 25.06.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi kjör á landsþingsfulltrúum fyrir kjörtímabilið 2026 - 2030. Öll sveitarfélög sem eiga aðild að Sambandinu eiga rétt til að senda fulltrúa á

landsþingið í samræmi við íbúafjölda 1. janúar 2026, sbr. ákvæði 5. gr. samþykkta Sambandsins. En þar segir að afloknum almennum sveitarstjórnarkosningum skuli hlutaðeigandi sveitarstjórnir kjósa fulltrúa á landsþing og gildir sú kosning fyrir kjörtímabil sveitarstjórnar. Þingeyjarsveit á rétt á tveimur fulltrúum á landsþing en einnig skal kjósa tvo til vara. Þá eiga framkvæmdastjórar sveitarfélaga, þ.e. bæjar- og sveitarstjórar, auk formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga, rétt til setu á landsþingi með málfrelsi og tillögurétti.
Í samræmi við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á kjörtímabilinu 2026-2030 eru eftirtaldir skipaðir sem landsþingfulltrúar:
Aðalfulltrúar:
Anna Bragadóttir
Knútur Emil Jónasson

Varafulltrúar:
Eyþór Kári Ingólfsson
Nanna Marteinsdóttir

Að auki á sveitarstjóri rétt til setu á landsþingi með málfrelsi og tillögurétt.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?