Vatnajökulsþjóðgarður - viðauki við stjórnunar- og verndaráætlun - Austurafrétt Bárðdæla
Málsnúmer 2605014
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 79. fundur - 13.05.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni frá Náttúruverndarstofnun er varðar Vatnajökulsþjóðgarð og viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir austurafrétt Bárðdæla. Umsagnarfrestur er til og með 18. júní n.k.
Skipulagsnefnd - 49. fundur - 21.05.2026
Lögð fram umsagnarbeiðini frá Náttúruverndarstofnun vegna Vatnajökulsþjóðgarðs og viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Austurafrétt Bárðdæla. Það sem um ræðir er svæði sem bættust við Vatnajökulsþjóðgarð 2021, nefnt Austurafrétt Bárðdæla og er hluti þjóðlendu innan Þingeyjarsveitar austan Skjálfandafljóts.
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn hefur þegar fjallað um málið og gerir ekki athugasemdir.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 80. fundur - 28.05.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni frá Náttúruverndarstofnun er varðar Vatnajökulsþjóðgarð og viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir austurafrétt Bárðdæla. Umsagnarfrestur er til og með 18. júní n.k.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við viðauka stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir austurafrétt Bárðdæla.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir austurafrétt Bárðdæla.
Samþykkt samhljóða.