Fara í efni

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - auglýsing starfs

Málsnúmer 2604015

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um auglýsingu starfs sviðsstjóra fjölskyldusviðs en ráðið var tímabundið í starfið til eins árs og lýkur þeirri ráðningu 31.08.2026.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að auglýsa starfið.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 79. fundur - 13.05.2026

Þann 17. apríl var starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar auglýst til umsóknar með umsóknarfresti til og með 1. maí. Fjórar umsóknir bárust um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrir fram skilgreind viðmið og vægi. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið.
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Hjördísi S. Albertsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs Þingeyjarsveitar.

Hjördís hefur gegnt starfi sviðsstjóra fjölskyldusviðs tímabundið frá hausti 2025 en hún var áður skólastjóri Reykjahlíðarskóla. Hjördís er með B.ed. próf í grunnskólakennarafræði og hefur jafnframt lagt stund á MLM nám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst. Hún hefur mikla kennslureynslu ásamt reynslu af stjórnun á hinum ýmsu sviðum skólasamfélagsins. Einnig var hún varaformaður Félags grunnskólakennara á árunum 2018-2021.

Sveitarstjórn býður Hjördísi velkomna til starfa fyrir Þingeyjarsveit.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?