Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

77. fundur 16. apríl 2026 kl. 14:00 - 15:40 í Þingey
Nefndarmenn
  • Gerður Sigtryggsdóttir
  • Knútur Emil Jónasson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Anna Bragadóttir
  • Halldór Þorlákur Sigurðsson
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson
  • Arnór Benónýsson
  • Haraldur Bóasson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Varaoddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Einnig óskaði varaoddviti eftir að bæta eftirtöldum liðum á dagskrá fundarins með afbrigðum:
Liður 19 - Samtök orkusveitarfélaga - aukaaðalfundur
Samþykkt samhljóða.
Liður 20 - Félag sumarhúsaeigenda í Lundi - vegna sorpmála
Samþykkt samhljóða.
Liður 21 - Girðingar - beitarhólf á Austurfjöllum
Samþykkt samhljóða.
Liður 22- Húsnæðisáætlun 2026
Samþykkt samhljóða.

1.Umhverfisnefnd - 34

Málsnúmer 2604001FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 34. fundar umhverfisnefndar frá 9. apríl. Fundargerðin er í tveimur liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Árni Pétur fór yfir fundargerðina.

2.Ársreikningur 2026

Málsnúmer 2604042Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til fyrri umræðu drög að ársreikningi Þingeyjarsveitar, A- og B-hluta fyrir árið 2025. Jón Ari Stefánsson, frá KPMG mætir til fundarins og fer yfir reikninginn. Einnig sitja fundinn undir þessum lið, Margrét Hólm Valsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gísli Sigurðsson skrifstofustjóri og Sigurður Þórarinsson aðalbókari.
Til máls tóku: Árni Pétur, Gerður, Arnór og Eyþór.

Sveitarstjórn þakkar Jóni Ara fyrir greinargóða yfirferð og samþykkir að vísa ársreikningi til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

3.Slökkviliðsstjóri - ráðningarferli 2026

Málsnúmer 2603070Vakta málsnúmer

Þann 19. mars sl. var starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Þingeyjarsveitar auglýst til umsóknar með umsóknarfresti til og með 26. mars. Þrjár umsóknir bárust um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrirfram skilgreind viðmið og vægi. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið.
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Hörð Sigurðsson í starf slökkviliðsstjóra við Brunavarnir Þingeyjarsveitar. Hörður hefur starfað sem slökkviliðsstjóri hjá Þingeyjarsveit frá desember 2024. Hörður hefur viðamikla þekkingu á sviði brunamála, hefur lokið námi eldvarnaeftirlitsmanns og starfað sem slíkur. Hörður hefur lokið fjölmörgum námskeiðum fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, hann hefur víðtæka reynslu bæði sem slökkviliðsmaður og sem stjórnandi í atvinnuliði. Sveitarstjórn býður Hörð velkominn til starfa fyrir Þingeyjarsveit.

Samþykkt samhljóða.

4.Stórutjarnaskóli - ráðningarferli skólastjóra vor 2026

Málsnúmer 2602042Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs varðandi ráðningarferli skólastjóra Stórutjarnaskóla. Starfið var auglýst þann 27. febrúar sl. með umsóknarfresti til 13. mars sem framlengdur var til 20. mars. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn umsækjenda í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrir fram skilgreind viðmið og vægi.
Til máls tóku:

Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Ingu Sigrúnu Atladóttur í starf skólastjóra Stórutjarnaskóla. Inga Sigrún er kennari frá Kennaraháskóla Íslands, hún er með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands og M.ed. í stjórnun menntastofnana frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Auk þess er Inga Sigrún með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka og jákvæða reynslu af skólastjórnun. Sveitarstjórn býður Ingu Sigrúnu velkomna til starfa.

Samþykkt samhljóða.

5.Hellir við Jarðböðin - framlenging á lokun

Málsnúmer 2510005Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Náttúruverndarstofnun er varðar friðlýsingu og framlengingu á lokun hellis við Jarðböðin. Óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar um framlengingu lokunar til 19. apríl 2027.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða framlengingu lokunar til 19. apríl 2027.

Samþykkt samhljóða.

6.Öldungamót í blaki 2027 í Þingeyjarsveit - ósk um samstarf og stuðning við mótshald

Málsnúmer 2603023Vakta málsnúmer

Lögð er fyrir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar útfærsla á aðkomu Þingeyjarsveitar vegna Öldungamóts BLÍ 2027 sem haldið verður í Norðurþingi og Þingeyjarsveit í apríl 2027.
Sveitarstjórn fagnar áformum um að haldið verði öldungamót í blaki á svæðinu. Sveitarstjórn samþykkir að veita mótshöldurum styrk sem nemur útleigu húsanna til mótshalda í Ýdölum, ÍMS og vallarhúsi Laugum. Hvað varðar athugasemd mótshaldara við gólf í íþróttahúsum sveitarfélagsins að Ýdölum og í Reykjahlíð þá er ekki gert ráð fyrir endurnýjun gólfa í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins á þessu ári en umsjónarmanni fasteigna er falið að láta kanna ástand búnaðar í húsunum og kostnaðarmeta endurnýjun á gólfum.

Samþykkt samhljóða.

7.Gluggar EJ ehf - ósk um kaup eða leigu á lóð austan og ofanvið stjórnsýsluhúsið á Laugum

Málsnúmer 2603072Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Eyþóri Jósepssyni hjá fyrirtækinu Gluggar EJ ehf þar sem óskað er eftir að kaupa eða taka á leigu lóðina austan og ofanvið stjórnsýsluhúsið á Laugum.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að funda með bréfritara og leggja tillögur fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

8.Skriðuföll í Útkinn - samningur um ráðgjöf

Málsnúmer 2312004Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur lokaskýrsla EFLU er varða endurbætur vegna skriðufalla í Útkinn 2021. Skýrslan er lokaafurð samnings Þingeyjarsveitar eldri við verkfræðistofuna EFLU um verkefnisstjórn og eftirlit við endurbætur eftir skriðuföllin.
Til máls tók: Arnór.

Með sérstöku framlagi úr ríkissjóði þann 22. apríl 2022 var Þingeyjarsveit eldri veitt framlag til að standa straum af verkefnisstjórn vegna hreinsunar og almennum uppgræðslu- og landgræðsluverkefnum á svæðinu í samstarfi við heimamenn og var í framhaldinu samið við Eflu um verkefnisstjórn. Því verkefni er nú að ljúka og þakkar sveitarstjórn Eflu fyrir vel unnin störf.

Samþykkt samhljóða.

9.Loftslagsstefna SSNE - skipun í samvinnuvettvang sveitarfélaga

Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá SSNE er varðar skipun í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd loftslagsstefnu. Óskað er eftir að skipun berist SSNE fyrir lok aprílmánaðar
Sveitarstjórn tilnefnir Rögnvald Harðarson sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs sem fulltrúa Þingeyjarsveitar í samvinnuvettvang sveitarfélaga um framfylgd loftslagsstefnu.

Samþykkt samhljóða.

10.Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - auglýsing starfs

Málsnúmer 2604015Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um auglýsingu starfs sviðsstjóra fjölskyldusviðs en ráðið var tímabundið í starfið til eins árs og lýkur þeirri ráðningu 31.08.2026.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að auglýsa starfið.

Samþykkt samhljóða.

11.Stapi lífeyrissjóður - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2603074Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Stapa lífeyrissjóði. Fundur haldinn mánudaginn 27. apríl n.k. í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri kl. 14:00
Sveitarstjórn tilnefnir Jónu Björgu Hlöðversdóttur sem fulltrúa Þingeyjarsveitar á fundinn.

Samþykkt samhljóða.

12.Sparisjóður Þingeyinga - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Sparisjóði Þingeyinga. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Breiðumýri, miðvikudaginn 22. apríl og hefst kl. 18
Sveitarstjórn felur Gerði Sigtryggsdóttur að fara með umboð Þingeyjarsveitar á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

13.Norðurorka hf. - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2603069Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Norðurorku hf. en aðalfundurinn verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri mánudaginn 20. apríl kl. 14:00
Sveitarstjórn felur Knúti Emil Jónassyni að sitja fundinn.

Samþykkt samhljóða.

14.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2604017Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarmálabók.

15.Málefni Bárðarborgar ehf.

Málsnúmer 2604019Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni frá stjórn Bárðarborgar ehf. um styrk að fjárhæð 2 mkr til reksturs húseignarinnar Kiðagils í Bárðardal.
Til máls tók: Árni Pétur.

Sveitarstjórn samþykkir styrk að fjárhæð tvær m.kr. til reksturs fasteignarinnar Kiðagils í Bárðardal. Styrkurinn færist á málaflokk 05.

Samþykkt samhljóða.

16.Þekkingarnet Þingeyinga - tilnefning í stjórn

Málsnúmer 2604018Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni frá Norðurþingi um tilnefningu í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga en skv. samningi sveitarfélaganna er standa að Þekkingarnetinu á Þingeyjarsveit að skipa varamann í stjórn til tveggja ára.
Sveitarstjórn tilnefnir Ósk Helgadóttur sem varamann í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga f.h. Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.

17.Lögreglusamþykkt fyrir Þingeyjarsveit

Málsnúmer 2411028Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til fyrri umræðu drög að lögreglusamþykkt Þingeyjarsveitar. Drögin voru áður á dagskrá sveitarstjórnar í desember 2024 en vegna mistaka ráðuneytis komu ekki athugasemdir og breytingatillögur frá ráðuneyti fyrr en í mars 2026. Samþykktin liggur nú fyrir með þeim breytingum sem ráðuneytið hefur lagt til.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að lögreglusamþykkt Þingeyjarsveitar og vísar þeim til annarrar umræðu.

Samþykkt samhljóða.

18.Hækkun virðisaukaskatts á baðlón.

Málsnúmer 2604020Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja drög að áskorun til þingmanna Norðausturkjördæmis vegna fyrirhugaðrar hækkunar virðisaukaskatts á baðlón.
Ragnhildur bar upp tillögu að vanhæfi sínu. Tillagan var felld með öllum atkvæðum sveitarstjórnarfulltrúa.

Til máls tóku: Árni Pétur, Haraldur, Anna, Jóna Björg, Gerður og Árni Pétur.

Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að senda þingmönnum kjördæmisins áskorunina.

Samþykkt með atkvæðum Gerðar, Önnu, Eyþórs, Arnórs, Ragnhildar, Árna Péturs og Jónu Bjargar.

Haraldur og Halldór sitja hjá.

19.Samtök orkusveitarfélaga - aukaaðalfundur

Málsnúmer 2604056Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur boð á aukaaðalfund Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl n.k. kl. 16:00
Sveitarstjórn felur Knúti Emil Jónassyni að fara með umboð Þingeyjarsveitar á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

20.Félag sumarhúsaeigenda í Lundi - vegna sorpmála

Málsnúmer 2604090Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá félagi sumarhúsaeigenda í Lundsskógi um sorphirðingu.
Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar því til umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

21.Girðingar - beitarhólf á Austurfjöllum

Málsnúmer 2308017Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um girðingu beitarhólfs á Austurfjöllum með 22-25 km girðingu norðan vegar frá Kröfluafleggjara að ristahliði við Dettifossveg. Beitarsvæðið verður þá um 38 þús ha og með girðingunni friðast Mellönd og Búrfellshraun, samtals rúmlega 60 þús ha. Verkefnið hefur verið kynnt fyrir landeigendum og liggur samþykki þeirra fyrir.

Sveitarstjórn samþykkir girðingu beitarhólfs á Austurfjöllum.
Um ræðir girðingu sem verður að mestu leyti fjármögnuð af Vegagerðinni og Landi og skógi enda er girðingin fyrst og fremst veggirðing og landgræðslugirðing.

Samþykkt samhljóða.

22.Húsnæðisáætlun 2026

Málsnúmer 2601025Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar húsnæðisáætlun 2026.
Til máls tók: Jóna Björg.

Sveitarstjórn staðfestir húsnæðisáætlun fyrir 2026.

Samþykkt samhljóða.

23.Byggðaáætlun - tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðaráætlun 2027-2031

Málsnúmer 2604014Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá SSNE sem varðar vinnuskjal aðgerðaráætlunar Byggðaáætlun. SSNE hvetur sveitarstjórn til að taka vinnuskjalið til skoðunar.
Lagt fram til kynningar.

24.Brák íbúðarfélag - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2604031Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar aðalfundarboð frá Brák íbúðarfélagi. Fundur er haldinn þriðjudaginn 28. apríl n.k. kl. 12:00 á Teams.
Lagt fram til kynningar.

25.Umboðsmaður barna - sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Málsnúmer 2604021Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar erindi frá Umboðsmanni barna er varðar sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Lagt fram til kynningar.

26.Samband íslenskra sveitarfélaga - stefna um opinbera þjónustu

Málsnúmer 2603071Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar stefnu um opinbera þjónustu. Sambandið hvetur sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir á netfangið samband@samband.is
Lagt fram til kynningar.

27.Orkukostnaður heimila 2025

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar erindi frá Byggðastofnum er varðar samanburð orkukostnaðs heimilanna fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

28.Raforkulög - drög að breytingum á reglugerð og breyting á verkefni Raforkueftirlitsins

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar umsagnir til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá SSKS.
Lagt fram til kynningar.

29.Byggðastofnun - samningar um styrki vegna nýrrar starfsemi í Kjarna

Málsnúmer 2603073Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar samningar frá Byggðastofnun um styrki til nýrrar starfsemi í Kjarna.
Til máls tók: Jóna Björg.

Lagt fram til kynningar.

30.Almenningssamgöngur - samningur um styrk verkefna

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar samningur sem gerður hefur verið við Byggðastofnun um styrk vegna verkefna á sviði almenningssamgangna.
Til máls tók: Gerður.

Lagt fram til kynningar.

31.Samtök orkusveitarfélaga - umsögn um verndar- og orkunýtingaráætlun

Málsnúmer 2604043Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar umsögn um verndar- og orkunýtingaráætlun frá Samtökum orkusveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

32.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026

Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 82. fundar stjórnar SSNE frá 24. mars s.l.
Til máls tók: Jóna Björg.

Lagt fram til kynningar.

33.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir

Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20. mars s.l.
Lagt fram til kynningar.

34.Samtök orkusveitarfélaga - fundargerðir

Málsnúmer 2311142Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar fundargerðir 89. og 90. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 9. janúar og 28. janúar s.l.
Lagt fram til kynningar.

35.Dvalarheimili aldraðra - fundargerðir stjórnarfunda

Málsnúmer 2511009Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð stjórnarfundar DA frá 19. mars s.l. ásamt ársreikningi og öðrum fylgigögnum fundar.
Lagt fram til kynningar.

36.Stjórn Norðurorku - fundargerðir

Málsnúmer 2305038Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 321. og 322. fundar stjórnar Norðurorku hf. frá 24. mars og 7. apríl s.l.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?