Skriðuföll í Útkinn - samningur um ráðgjöf
Málsnúmer 2312004
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur lokaskýrsla EFLU er varða endurbætur vegna skriðufalla í Útkinn 2021. Skýrslan er lokaafurð samnings Þingeyjarsveitar eldri við verkfræðistofuna EFLU um verkefnisstjórn og eftirlit við endurbætur eftir skriðuföllin.
Með sérstöku framlagi úr ríkissjóði þann 22. apríl 2022 var Þingeyjarsveit eldri veitt framlag til að standa straum af verkefnisstjórn vegna hreinsunar og almennum uppgræðslu- og landgræðsluverkefnum á svæðinu í samstarfi við heimamenn og var í framhaldinu samið við Eflu um verkefnisstjórn. Því verkefni er nú að ljúka og þakkar sveitarstjórn Eflu fyrir vel unnin störf.
Samþykkt samhljóða.