Girðingar - beitarhólf á Austurfjöllum
Málsnúmer 2308017
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um girðingu beitarhólfs á Austurfjöllum með 22-25 km girðingu norðan vegar frá Kröfluafleggjara að ristahliði við Dettifossveg. Beitarsvæðið verður þá um 38 þús ha og með girðingunni friðast Mellönd og Búrfellshraun, samtals rúmlega 60 þús ha. Verkefnið hefur verið kynnt fyrir landeigendum og liggur samþykki þeirra fyrir.
Um ræðir girðingu sem verður að mestu leyti fjármögnuð af Vegagerðinni og Landi og skógi enda er girðingin fyrst og fremst veggirðing og landgræðslugirðing.
Samþykkt samhljóða.