Umboðsmaður barna - sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Málsnúmer 2604021
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar erindi frá Umboðsmanni barna er varðar sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Lagt fram til kynningar.
Ungmennaráð - 4. fundur - 24.04.2026
Umboðsmaður barna hvetur því sveitarstjórn til að koma á umræðufundi með fulltrúum
framboða og nemendum grunnskóla í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Slíkur fundur myndi gefa börnunum tækifæri til þess að kynna sér þau málefni sem framboðin
standa fyrir og spyrja spurninga um það sem skiptir þau máli. Með því er hægt að efla þátttöku
barna í lýðræðislegri umræðu innan sveitarfélagsins.
Jafnframt hvetur umboðsmaður barna sveitarstjórnir og ungmennaráð sveitarfélaga til þess að
standa fyrir krakkakosningum í sínu sveitarfélagi í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla
sveitarfélagsins. Umboðsmaður barna óskar eftir að fá upplýsingar um það hvort og með hvaða
hætti sveitarfélagið muni bregðast við þessari hvatningu.

Fyrir Ungmennaráði liggur erindi frá Umboðsmanni barna er varðar sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna
Ungmennaráð tekur undir hvatningu umboðsmanns barna og skorar á sveitarstjórn að koma á umræðufundi með fulltrúum framboða til þess að kynna sig og sín málefni fyrir nemendum í grunnskólum sveitarfélagsins.