Fara í efni

Lögreglusamþykkt fyrir Þingeyjarsveit

Málsnúmer 2411028

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026

Fyrir sveitarstjórn liggja til fyrri umræðu drög að lögreglusamþykkt Þingeyjarsveitar. Drögin voru áður á dagskrá sveitarstjórnar í desember 2024 en vegna mistaka ráðuneytis komu ekki athugasemdir og breytingatillögur frá ráðuneyti fyrr en í mars 2026. Samþykktin liggur nú fyrir með þeim breytingum sem ráðuneytið hefur lagt til.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að lögreglusamþykkt Þingeyjarsveitar og vísar þeim til annarrar umræðu.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 78. fundur - 30.04.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til síðari umræðu drög að lögreglusamþykkt Þingeyjarsveitar.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða lögreglusamþykkt og felur sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslusviðs að senda hana til staðfestingar í ráðuneyti. Að lokinni staðfestingu ráðuneytis og auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda skal birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?