Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

78. fundur 30. apríl 2026 kl. 14:00 - 15:26 í Þingey
Nefndarmenn
  • Gerður Sigtryggsdóttir
  • Knútur Emil Jónasson
  • Halldór Þorlákur Sigurðsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Anna Bragadóttir
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson
  • Arnór Benónýsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Úlla Árdal
  • Haraldur Bóasson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Einnig óskaði oddviti eftir bæta eftirtöldum málum á dagskrá fundarins með afbrigðum:
Liður 4 - Framkvæmda- og veitunefnd - fundargerðir
Samþykkt samhljóða.
Liður 17 -Veiðifélag Skjálfandafljóts - A deild - aðalfundur 2026.
Samþykkt samhljóða.

1.Skipulagsnefnd - 48

Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 48. fundar skipulagsnefndnefndar frá 22. apríl. Fundargerðin er í ellefu liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Knútur kynnti fundargerðina.

2.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 35

Málsnúmer 2604004FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 35. fundar fræðslu- og velferðarnefndar frá 22. apríl. Fundargerðin er í sjö liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Ragnhildur kynnti fundargerðina.

3.Ungmennaráð - 4

Málsnúmer 2604005FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð fjórða fundar ungmennaráðs frá 24. apríl. Fundargerðin er í sjö liðum. Liður 5 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar en liður 6 sem einnig er vísað til sveitarstjórnar var afgreiddur á fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl sl.
Til máls tók: Jóna Björg.

4.Framkvæmda- og veitunefnd - fundargerðir

Málsnúmer 2505073Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 9. fundar famkvæmda- og veitunefndar frá 30. apríl.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn staðfestir fundargerð framkvæmda- og veitunefndar og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram þær tillögur sem koma fram í fundargerð.

Samþykkt samhljóða.

5.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer

Skýrsla fundarstjóra flutt munnlega og til kynningar.
Til máls tók: Knútur

Gerður Sigtryggsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum síðustu vikur.

6.Ársreikningur 2025

Málsnúmer 2604042Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til síðari umræðu, ársreikningur Þingeyjarsveitar fyrir 2025.
Til máls tók: Gerður.


Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins í A og B hluta var jákvæð um sem nam 254 m.kr og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð sem nam 198,8 m.kr. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2025 með viðaukum var gert ráð fyrir 104,8 m.kr. rekstrarniðurstöðu í A og B hluta. Niðurstaðan er því 149,2 m.kr hagstæðari en áætlað var.

Samanlagðar rekstrartekjur í A og B hluta á árinu námu 3.041,8 m.kr., en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.825,6 m.kr. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir 2025 með viðaukum var gert ráð fyrir rekstrartekjum sem næmu 3.075,5 m.kr í A og B hluta. Rekstrartekjur eru því 33,7 m.kr lægri en áætlun gerði ráð fyrir eða sem nemur 1,1%.

Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld og annar rekstrarkostnaður, námu samtals 2.602,4 m.kr á árinu. Þar af eru laun og launatengd gjöld 1.578,6 m.kr og annar rekstrarkostnaður er 1.023,8 m.kr.
Fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir rekstrargjöldum sem næmu 2.747,3 m.kr. Þar af laun og launatengd gjöld 1.544,1 m.kr og annar rekstrarostnaður áætlaður 1.203,2 m.kr.
Laun og launatengd gjöld ársins eru því 34,5 m.kr yfir því sem áætlun gerði ráð fyrir og annar rekstrarkostnaður 179,4 m.kr lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Fjöldi ársverka voru 115 og fjölgaði þeim um fimm á milli ára.

Afborganir langtímalána námu 148,3 m.kr. á árinu en áfallnar verðbætur 40,7 m.kr. Engin ný lán voru tekin á árinu og er því heildarlækkun langtímalána 107,6 m.kr. að teknu tilliti til áfallinna verðbóta.
Samkvæmt sjóðsstreymisyfirliti samstæðu á árinu 2025 nam veltufé frá rekstri 371,9 m.kr á móti 361,6 m.kr árið 2024. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 206,3 m.kr á árinu.
Eigið fé í árslok nam 1.646,5 m.kr fyrir A og B hluta samanborið við 1.321,4 m.kr árið áður.
Eiginfjárhlutfall A og B hluta, nemur 48,6% í árslok. Sama hlutfall í lok árs 2024 var 42,1%. Veltufjárhlutfall hækkar á milli ára og er nú 0,94% en var 0,78%. í lok árs 2024.
Skuldaviðmið A og B hluta, skv. reglugerð um fjármál sveitarfélaga er 41% í árslok en var 50,6% í árslok 2024.
Skuldahlutfall sveitarfélagsins, A og B hluta er 57,1% í árslok 2025 en var 66,7% í árslok 2024.

Í ljósi niðurstöðu ársreiknings ársins 2025 er full ástæða til bjartsýni til framtíðar. Sveitarstjórn færir stjórnendum og starfsmönnum bestu þakkir fyrir þeirra framlag til ábyrgs reksturs og góðrar þjónustu. Sveitarstjórn þakkar einnig endurskoðendum fyrir gott samstarf við gerð ársreiknings.

Samþykkt samhljóða.

7.Lögreglusamþykkt fyrir Þingeyjarsveit

Málsnúmer 2411028Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til síðari umræðu drög að lögreglusamþykkt Þingeyjarsveitar.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða lögreglusamþykkt og felur sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslusviðs að senda hana til staðfestingar í ráðuneyti. Að lokinni staðfestingu ráðuneytis og auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda skal birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

8.Landskerfi bókasafna - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2604106Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð Landskerfa bókasafna hf. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 12. maí kl. 14 í húsakynnum félagsins að Katrínartúni 4, jarðhæð.

9.Hundahald - brot á samþykktum

Málsnúmer 2208011Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarmálabók
Fært í trúnaðarmálabók

10.Skriðuföll í Útkinn - landgræðsluáform

Málsnúmer 2604126Vakta málsnúmer

Á vormánuðum 2022 fékk Þingeyjarsveit greiddan 30 mkr styrk úr ríkissjóði til að sjá um framkvæmd hreinsunar og uppgræðslu á svæðinu í samstarfi við heimamenn. Efla verkfræðistofa var eftirlitsaðili með hreinsunarverkefninu og var lokaskýrsla þess kynnt á fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl sl.

Fyrir liggur að eftirstöðvar styrksins frá 2022 nema kr. 22.351.337, sem áætlað er að nýta til uppgræðslu skriðusvæðanna.
Jóna Björg vakti athygli á mögulegu vanhæfi.
Samþykkt samhljóða.
Jóna Björg yfirgaf fund kl. 14.58.

Sveitarstjórn felur umhverfisfulltrúa að semja tillögu að verkáætlun fyrir uppgræðsluna í samráði við hagaðila, þar sem m.a. verði gerð grein fyrir helstu verkþáttum, forgangsröðun, kostnaðaráætlun og framkvæmdatíma, og leggja tillöguna fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

Jóna Björg kom aftur til fundar kl. 15.00.

11.Þingeyjarsveit - öryggisstefna gagna og tölvukerfa

Málsnúmer 2604119Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til afgreiðslu, drög að öryggisstefnu gagna og tölvukerfa Þingeyjarsveitar.
Til máls tók: Jóna Björg.

Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að öryggisstefnu gagna og tölvukerfa sveitarfélagsins og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að birta þær á heimasíðu og skipuleggja kynningu fyrir starfsmenn.

Samþykkt samhljóða.

12.Grunnskólarnir - Skóladagatal 2026 - 2027

Málsnúmer 2604115Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til samþykktar skóladagatöl grunnskóla Þingeyjarsveitar. Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkti skóladagatölin á fundi sínum þann 22. apríl 2026.
Sveitarstjórn samþykkir framlögð skóladagatöl grunnskóla Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.

13.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er í þremur liðum.

Í fyrsta lið er um að ræða breytingu á fjárfestingaráætlun ársins en verið er að hækka framlag til Eignasjóðs að upphæð 6,6 m.kr. vegna Þingeyjar.

Í öðrum lið er verið að hækka framlag vegna Eignasjóðs - viðhald fasteigna vegna þaks að Ýdölum að upphæð 4 m.kr. og færist á deild 31 - Eignasjóður.

Í þriðja lið er verið að hækka framlag að upphæð 6,4 m.kr. vegna barnaverndar og færist sá liður á málaflokk 02 - Barnavernd.

Allir liðir viðaukans eru fjármagnaðir af handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026.

Samþykkt samhljóða.

14.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til afgreiðslu og samþykktar samningar við íþróttafélög í Þingeyjarsveit.
Til máls tók: Eyþór Kári.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar því að lögð hafa verið fram drög að heildstæðum samningum við æskulýðs- og íþróttafélög í sveitarfélaginu. Í drögunum er lögð áhersla á að bæta aðgengi félaga að fasteignum sveitarfélagsins, jafnframt því sem stuðningur við starfsemi félaganna er aukinn með það að markmiði að efla og styrkja það góða og mikilvæga starf sem fram fer á þeirra vegum.
Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með fyrirliggjandi drög og vísar þeim til umfjöllunar í íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd.

Samþykkt samhljóða.

15.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2604129Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarmálabók

16.Félagsþjónusta Norðurþings - endurnýjun samnings 2026

Málsnúmer 2604130Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja drög að samningi við Félagsþjónustu Norðurþings. Um er að ræða endurnýjun samnings sem sveitarfélögin á svæðinu hafa gert við Norðurþing um almenna félagsþjónustu allt frá árinu 2006.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Félagsþjónustu Norðurþings, með þeim fyrirvara að samningsaðilar geti endurskoðað samninginn, komi til breytinga á forsendum hans á samningstímanum.

Samþykkt samhljóða.

17.Veiðifélag Skjálfandafljóts A deild - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2604132Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Veiðifélagi Skjálfandafljóts A deild. Fundurinn verður haldinn 12. maí í Ljósvetningabúð kl. 20
Þar sem fundarboð er stílað á Héraðsnefnd Þingeyinga vegna eignarhluta í Þingey tilnefnir sveitarstjórn Árna Pétur Hilmarsson til setu á fundinum og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að leita samþykkis annarra sveitarfélaga innan Héraðsnefndar.

Samþykkt samhljóða.

18.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 599. mál - Loftslagslög

Málsnúmer 2604127Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni 595. máls Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um loftslagslög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8.maí nk.

19.Ungmennaþing SSNE 2026

Málsnúmer 2604121Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar ályktun Ungmennaþings SSNE sem haldið var 15. apríl sl.

20.Skrifstofa Þingeyjarsveitar - breyttur opnunartími

Málsnúmer 2604118Vakta málsnúmer

Frá 1. maí 2026 breytist opnunartími skrifstofu Þingeyjarsveitar í tengslum við vinnutímastyttingu starfsfólks.

Skrifstofan verður opin eins og áður mánudaga - fimmtudaga frá 9 -15 en á föstudögum verður opið frá 9 -12.
Sveitarstjórn samþykkir breytingu á opnunartíma skrifstofu Þingeyjarsveitar vegna vinnutímastyttingar starfsfólks. Skrifstofan verður opin eins og áður mánudaga - fimmtudaga frá 9 -15 en á föstudögum verður opið frá 9 -12.

Samþykkt samhljóða.

21.Atvinnuefling Þingeyjarsveitar - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2604131Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar ársreikningur Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar ásamt aðalfundargerð.

22.Farsældarráð Norðurlands eystra - fundargerðir

Málsnúmer 2512037Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 5. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 8. apríl s.l.

23.Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - fundargerðir

Málsnúmer 2307011Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 247. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 15. apríl s.l.

24.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir

Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17. apríl s.l.

Fundi slitið - kl. 15:26.

Getum við bætt efni þessarar síðu?