Fara í efni

Skriðuföll í Útkinn - landgræðsluáform

Málsnúmer 2604126

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 78. fundur - 30.04.2026

Á vormánuðum 2022 fékk Þingeyjarsveit greiddan 30 mkr styrk úr ríkissjóði til að sjá um framkvæmd hreinsunar og uppgræðslu á svæðinu í samstarfi við heimamenn. Efla verkfræðistofa var eftirlitsaðili með hreinsunarverkefninu og var lokaskýrsla þess kynnt á fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl sl.

Fyrir liggur að eftirstöðvar styrksins frá 2022 nema kr. 22.351.337, sem áætlað er að nýta til uppgræðslu skriðusvæðanna.
Jóna Björg vakti athygli á mögulegu vanhæfi.
Samþykkt samhljóða.
Jóna Björg yfirgaf fund kl. 14.58.

Sveitarstjórn felur umhverfisfulltrúa að semja tillögu að verkáætlun fyrir uppgræðsluna í samráði við hagaðila, þar sem m.a. verði gerð grein fyrir helstu verkþáttum, forgangsröðun, kostnaðaráætlun og framkvæmdatíma, og leggja tillöguna fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

Jóna Björg kom aftur til fundar kl. 15.00.
Getum við bætt efni þessarar síðu?