Ársreikningur 2026
Málsnúmer 2604042
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggja til fyrri umræðu drög að ársreikningi Þingeyjarsveitar, A- og B-hluta fyrir árið 2025. Jón Ari Stefánsson, frá KPMG mætir til fundarins og fer yfir reikninginn. Einnig sitja fundinn undir þessum lið, Margrét Hólm Valsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Gísli Sigurðsson skrifstofustjóri og Sigurður Þórarinsson aðalbókari.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 78. fundur - 30.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til síðari umræðu, ársreikningur Þingeyjarsveitar fyrir 2025.
Til máls tók: Gerður.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins í A og B hluta var jákvæð um sem nam 254 m.kr og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð sem nam 198,8 m.kr. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2025 með viðaukum var gert ráð fyrir 104,8 m.kr. rekstrarniðurstöðu í A og B hluta. Niðurstaðan er því 149,2 m.kr hagstæðari en áætlað var.
Samanlagðar rekstrartekjur í A og B hluta á árinu námu 3.041,8 m.kr., en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.825,6 m.kr. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir 2025 með viðaukum var gert ráð fyrir rekstrartekjum sem næmu 3.075,5 m.kr í A og B hluta. Rekstrartekjur eru því 33,7 m.kr lægri en áætlun gerði ráð fyrir eða sem nemur 1,1%.
Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld og annar rekstrarkostnaður, námu samtals 2.602,4 m.kr á árinu. Þar af eru laun og launatengd gjöld 1.578,6 m.kr og annar rekstrarkostnaður er 1.023,8 m.kr.
Fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir rekstrargjöldum sem næmu 2.747,3 m.kr. Þar af laun og launatengd gjöld 1.544,1 m.kr og annar rekstrarostnaður áætlaður 1.203,2 m.kr.
Laun og launatengd gjöld ársins eru því 34,5 m.kr yfir því sem áætlun gerði ráð fyrir og annar rekstrarkostnaður 179,4 m.kr lægri en áætlun gerði ráð fyrir. Fjöldi ársverka voru 115 og fjölgaði þeim um fimm á milli ára.
Afborganir langtímalána námu 148,3 m.kr. á árinu en áfallnar verðbætur 40,7 m.kr. Engin ný lán voru tekin á árinu og er því heildarlækkun langtímalána 107,6 m.kr. að teknu tilliti til áfallinna verðbóta.
Samkvæmt sjóðsstreymisyfirliti samstæðu á árinu 2025 nam veltufé frá rekstri 371,9 m.kr á móti 361,6 m.kr árið 2024. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 206,3 m.kr á árinu.
Eigið fé í árslok nam 1.646,5 m.kr fyrir A og B hluta samanborið við 1.321,4 m.kr árið áður.
Eiginfjárhlutfall A og B hluta, nemur 48,6% í árslok. Sama hlutfall í lok árs 2024 var 42,1%. Veltufjárhlutfall hækkar á milli ára og er nú 0,94% en var 0,78%. í lok árs 2024.
Skuldaviðmið A og B hluta, skv. reglugerð um fjármál sveitarfélaga er 41% í árslok en var 50,6% í árslok 2024.
Skuldahlutfall sveitarfélagsins, A og B hluta er 57,1% í árslok 2025 en var 66,7% í árslok 2024.
Í ljósi niðurstöðu ársreiknings ársins 2025 er full ástæða til bjartsýni til framtíðar. Sveitarstjórn færir stjórnendum og starfsmönnum bestu þakkir fyrir þeirra framlag til ábyrgs reksturs og góðrar þjónustu. Sveitarstjórn þakkar einnig endurskoðendum fyrir gott samstarf við gerð ársreiknings.
Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn þakkar Jóni Ara fyrir greinargóða yfirferð og samþykkir að vísa ársreikningi til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.