Fara í efni

Slökkviliðsstjóri - ráðningarferli 2026

Málsnúmer 2603070

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026

Þann 19. mars sl. var starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Þingeyjarsveitar auglýst til umsóknar með umsóknarfresti til og með 26. mars. Þrjár umsóknir bárust um starfið. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrirfram skilgreind viðmið og vægi. Mögnum ráðningar sáu um ráðningarferlið.
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Hörð Sigurðsson í starf slökkviliðsstjóra við Brunavarnir Þingeyjarsveitar. Hörður hefur starfað sem slökkviliðsstjóri hjá Þingeyjarsveit frá desember 2024. Hörður hefur viðamikla þekkingu á sviði brunamála, hefur lokið námi eldvarnaeftirlitsmanns og starfað sem slíkur. Hörður hefur lokið fjölmörgum námskeiðum fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, hann hefur víðtæka reynslu bæði sem slökkviliðsmaður og sem stjórnandi í atvinnuliði. Sveitarstjórn býður Hörð velkominn til starfa fyrir Þingeyjarsveit.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?