Stórutjarnaskóli - ráðningarferli skólastjóra vor 2026
Málsnúmer 2602042
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 74. fundur - 26.02.2026
Fyrir sveitarstjórn liggja drög að auglýsingu um starf skólastjóra í Stórutjarnaskóla.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs varðandi ráðningarferli skólastjóra Stórutjarnaskóla. Starfið var auglýst þann 27. febrúar sl. með umsóknarfresti til 13. mars sem framlengdur var til 20. mars. Lagt var mat á framlögð umsóknargögn umsækjenda í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram í auglýsingu. Við matið var stuðst við fyrir fram skilgreind viðmið og vægi.
Til máls tóku:
Í framhaldi þess að sveitarstjórn hefur kynnt sér öll gögn málsins er lögð fram eftirfarandi tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að ráða Ingu Sigrúnu Atladóttur í starf skólastjóra Stórutjarnaskóla. Inga Sigrún er kennari frá Kennaraháskóla Íslands, hún er með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands og M.ed. í stjórnun menntastofnana frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Auk þess er Inga Sigrún með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka og jákvæða reynslu af skólastjórnun. Sveitarstjórn býður Ingu Sigrúnu velkomna til starfa.
Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða