Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
Dagskrá
1.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 33
Málsnúmer 2602004FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 33. fundar fræðslu- og velferðarnefndar frá 17. febrúar. Fundargerðin er í fimm liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Jóna Björg fór yfir fundargerðina.
2.Skipulagsnefnd - 46
Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 46. fundar skipulagsnefndar frá 18. febrúar. Fundargerðin er í fimm liðum. Liður 1 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er sér liður á fundinum.
Haraldur fór yfir fundargerðina.
3.Ungmennaráð - fundargerðir
Málsnúmer 2512055Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur 2. fundargerð Ungmennaráðs Þingeyjarsveitar frá 13. febrúar 2025 til staðfestingar.
Til máls tók undir 1. lið: Eyþór Kári, Arnór og Eyþór Kári
Jóna Björg kynnti fundargerðina.
Sveitarstjórn fellst ekki á breytingu á erindisbréfi ungmennaráðs að svo stöddu.
Varðand opnunartíma sundlaugar á Laugum beinir sveitarstjórn því til verkefnastjóra æskulýðs-, íþrótta og tómstundamála að rýna tillögurnar og kostnaðarmeta og leggja fyrir íþrótta-, tómstunda og menningarnefnd.
Samþykkt samhljóða.

4.Framkvæmda- og veitunefnd - fundargerðir
Málsnúmer 2505073Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 8. fundar framkvæmda- og veitunefnd Þingeyjarsveitar frá 12. febrúar s.l.
5.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
Á 46. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 18.febrúar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir liðnum - Aðalskipulag 2024 - 2044 - endurskoðun þar sem fjallað var um drög að svörum nefndarinnar við umsögnum og athugasemdum og þær breytingar sem gerðar hafa verið á skipulagsgögnum frá auglýsingu. Úr bókun skipulagsnefndar:
"Skipulagsnefnd samþykkir tillögur að svörum við umsögnum við auglýsta tillögu að aðalskipulagi, með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Starfsmanni falið að uppfæra gögn í samræmi við þær breytingar sem lagðar voru til á fundinum og leggja fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“ „Skipulagsnefnd þakkar Árna Geirssyni hjá Alta fyrir góða samvinnu við skipulagsgerðina."

Til máls tóku: Eyþór Kári, Gerður, Árni Pétur og Eyþór Kári
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkir endurskoðað aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044 skv. 32. gr. skipulagslaga 123/2010 til staðfestingar með þeim breytingum eftir auglýsingu sem samþykktar voru á fundi skipulagsnefndar. Ekki voru gerðar grundvallarbreytingar á skipulagstillögunni. Sveitarstjórn samþykkir einnig tillögur skipulagsnefndar að svörum við umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.
Samþykkt samhljóða
Eyþók Kári leggur fram eftirfarandi bókun:
Við Undirritaðir Sveitarstjórnarfulltrúar, erum ósammála þeirri ákvörðun að Einbúavirkjun sé ekki inni á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044. Það er óheillaskref að hafna slíkum framkvæmdum í sveitarfélaginu sem hefðu getað haft veruleg jákvæð áhrif á nærsamfélagið og sveitarfélagið allt.
Minnihluti Sveitarstjórnar telur að Einbúavirkjun hafi ekki ennþá fengið fullnægjandi skipulagsmeðferð, en í bréfi frá Skipulagsstofnun dagsett 13.5.2025 um tillögu að aðalskipulagi segir um Einbúavirkjun:
"Skipulagsstofnun beinir því til Sveitarstjórnar að færa skýr rök fyrir því að falla frá áformum um virkjun og þar með að koma í veg fyrir að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að hafa aðkomu að ákvörðuninni í gegnum lýðræðislegt samráðsferli við endurskoðun aðalskipulagsins. Þetta er mikilvægt, einkum með hliðsjón af niðurstöðu umhverfismats framkvæmdarinnar, mótvægisaðgerðum sem farið var fram á við framkvæmdaraðila og fyrri ákvörðun um að hefja skipulagsgerð vegna virkjunarinnar."
Þau rök sem skipulagsstofnun kallar eftir hafa að okkar mati ekki litið dagsins ljós ennþá. Ennfremur stendur í Loftlagsstefnu Þingeyjarsveitar: "Stefnt er að því að nýta tækifæri til sjálfbærrar orkuöflunar með öllum þeim leiðum sem mögulegar eru."
í öðru lagi teljum við að íbúðarbyggðarreitur ÍB-653 Dagmálahóll hefði ekki átt að vera á aðalskipulagi.
Undirritaðir: Eyþór Kári Ingólfsson, Halldór Þorlákur Sigurðsson, Haraldur Bóasson

6.Vegir í náttúru Íslands - til staðfestingar samhliða aðalskipulagi
Málsnúmer 2602039Vakta málsnúmer
Á 46. Fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 18. febrúar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir liðnum - Aðalskipulag 2024 - 2044 endurskoðun þar sem m.a. var lögð fram tillaga að skrá yfir vegi í náttúru Íslands í samræmi við 32. gr. náttúruverndarlaga nr.60/2013. Úr bókun Skipulagsnefndar:
"Skipulagsnefnd samþykkir einnig tillögur að svörum við athugasemdum við skrá um vegi í náttúru Íslands. Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki þá tillögu að vegaskrá sem fram kemur á skýringaruppdrætti og kynnt var samhliða aðalskipulagstillögunni í samræmi við ákvæði 2. mgr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Vegaskráin er samþykkt með öllum þeim margþættu fyrirvörum sem settir voru fram í kynningargögnum og án upplýsinga um vegi innan Vatnajökulsþjóðgarðs, þar sem Náttúruverndarstofnun hefur ekki lokið gerð stjórnunar- og verndaráætlunar á hluta svæðisins. Jafnframt er ljóst að vegaskráin getur af sömu ástæðum ekki hlotið samþykki Náttúruverndarstofnunar eins og áskilið er í lagagreininni, sbr. einnig umsögn stofnunarinnar um aðalskipulagstillöguna."

Til máls tóku: Anna
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 samþykkir sveitarstjórn þá tillögu að vegaskrá sem fram kemur á skýringaruppdrætti og kynntur var samhliða aðalskipulagstillögunni. Samþykkt vegaskrárinnar er með öllum þeim margþættu fyrirvörum sem settir voru fram í kynningargögnum og án upplýsinga um vegi innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Ljóst er að vegaskráin getur ekki hlotið samþykki Náttúruverndarstofnunar eins og áskilið er í lagagreininni, sbr. umsögn stofnunarinnar um aðalskipulagstillöguna. Tillaga sveitarstjórnar er því sett fram og samþykkt til málamynda.
Sveitarstjórn gerir ráð fyrir að þessir hnökrar varðandi vegaskrána hafi engin áhrif á staðfestingu aðalskipulagsins nema Skipulagsstofnun geti sýnt fram á að form- eða efnisgallar séu á afgreiðslu sveitarstjórnar á aðalskipulaginu eða gerð þess og vísar þá tillögunni til ráðherra ásamt rökstuðningi í greinargerð, eins og kveðið er á um í 4. mgr. 32. gr. skipulagslaga. Mikilvægt er að hafa í huga að vegaskráin er ekki hluti af aðalskipulaginu þótt samþykkt hennar sé tengd afgreiðslu aðalskipulags.

7.Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum
Málsnúmer 2602017Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá byggðarráði Norðurþings varðandi svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum þar sem óskað er eftir samtali við Þingeyjarsveit varðandi framhald svæðiskipulags sem sveitarfélögin höfðu með sér á tilgreindum háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum og iðnaðarsvæðinu á Bakka á árunum 2007-2025.
Sveitarstjórn þakkar erindið og felur sveitarstjóra að funda með byggðaráði Norðurþings.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
8.Ljósvetningabúð - ábending um framkvæmdir
Málsnúmer 2602035Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Aðalheiði Kjartansdóttur þar sem skorað er á sveitarstjórn að stækka sal Ljósvetningabúðar.
Til máls tóku: Árni Pétur og Jóna Björg
Sveitarstjórn þakkar erindið. Málefni félagsheimila sveitarfélagsins hafa verið í skoðun m.a. út frá mikilli viðhaldsþörf og rekstrarkostnaði.
Samþykkt samhljóða
Sveitarstjórn þakkar erindið. Málefni félagsheimila sveitarfélagsins hafa verið í skoðun m.a. út frá mikilli viðhaldsþörf og rekstrarkostnaði.
Samþykkt samhljóða
9.Stórutjarnarskóli - leikskóli í framtíðarhúsnæði
Málsnúmer 2505042Vakta málsnúmer
Opnuð voru tilboð í endurbætur á leikskólanum Tjarnarskjól í Stórutjarnaskóla þann 25.2.2026.
Kostnaðaráætlun AVH var 55.345.158 kr.
Tvö tilboð bárust: frá Trésmiðjunni Sólbakka kr. 75.467.368
Frávikstilboð frá Trésmiðjuni Sólbakka kr. 72.705.216
Kostnaðaráætlun AVH var 55.345.158 kr.
Tvö tilboð bárust: frá Trésmiðjunni Sólbakka kr. 75.467.368
Frávikstilboð frá Trésmiðjuni Sólbakka kr. 72.705.216
Til máls tóku: Eyþór Kári, Gerður, Úlla og Jóna Björg
Sveitarstjórn samþykkir frávikstilboð frá Trésmiðjunni Sólbakka ehf að fjárhæð kr. 72.705.216 og felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að ganga frá samningi við bjóðanda.
Samykkt samhljóða
Sveitarstjórn samþykkir frávikstilboð frá Trésmiðjunni Sólbakka ehf að fjárhæð kr. 72.705.216 og felur sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að ganga frá samningi við bjóðanda.
Samykkt samhljóða
10.Kálfaströnd íbúðarhús - ástandsskýrsla
Málsnúmer 2602040Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur skýrsla frá Eflu um ástandsskoðun gamla íbúðarhússins á Kálfaströnd.
Í ljósi ástands hússins skv. ástandsskoðun Eflu er búseta í húsinu ekki talin heilsusamleg. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að slíta leigusamningum og leita annarra lausna fyrir leigjendur.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
11.Stórutjarnaskóli - ráðningarferli skólastjóra vor 2026
Málsnúmer 2602042Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja drög að auglýsingu um starf skólastjóra í Stórutjarnaskóla.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða starfsauglýsingu og felur sviðsstjóra Fjölskyldusviðs að birta framlagða auglýsingu.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
12.Skjálfandaflói - ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag
Málsnúmer 2602047Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu með ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Skjálfandaflóa. Tilnefningar skulu berast ráðuneytinu í síðasta lagi 11. mars n.k.
Sveitarstjórn tilnefnir Jónu Björgu Hlöðversdóttur aðalmann og Knút Emil Jónasson til vara.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
13.Brunavarnir Þingeyjarsveitar - starf slökkviliðsstjóra
Málsnúmer 2602041Vakta málsnúmer
í framhaldi af uppsögn slökkviliðsstjóra Þingeyjarsveitar frá og með 31.12.25 liggur fyrir sveitarstjórn að auglýsa starf slökkviliðsstjóra laust til umsóknar.
Til máls tóku: Arnór, Jóna Björg
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að auglýsa starf slökkviliðsstjóra laust til umsóknar.
Samþykkt samhljóða
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að auglýsa starf slökkviliðsstjóra laust til umsóknar.
Samþykkt samhljóða
14.Greið leið ehf - hluthafafundur 2026
Málsnúmer 2602036Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur boð á hluthafafund Greiðrar leiðar ehf sem haldinn verður í fjarfundi þann 27. febrúar kl. 13.00
Sveitarstjórn felur Arnóri Benónýssyni að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinn og samþykkir fyrir sitt leyti sölu hlutar í Greiðri leið ehf.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
15.Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar - Buggy sýning á vetrarhátíð - umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
Málsnúmer 2602037Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni um buggy bílasýningu á Stakhólstjörn í tengslum við Vetrarhátíð í Mývatnssveit.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umbeðið leyfi til buggy-bíla sýningar á Stakhólstjörn þann 27. febrúar enda liggur fyrir leyfi landeigenda.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
16.Mývatn ehf. - beiðni um umsögn vegna tímabundins áfengisleyfis
Málsnúmer 2602034Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur beiðni um umsögn frá sýslumanninum á Norðurlandi eystra vegna umsóknar Mývatns ehf. kt. 520491-133 um tímabundið áfengisleyfi í Skjólbrekku (F216179) á viðburðinum "Opin æfing hjá karlakór í Skjólbrekku sem fram fer 2. mars nk.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við umbeðið tímabundið áfengisleyfi.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
17.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026
Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 80. fundar stjórnar SSNE frá 5. febrúar sl.
18.Samtök orkusveitarfélaga - fundargerðir
Málsnúmer 2311142Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerðir 88. og 89. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 17. október 2025 og 9. janúar s.l.
19.Stjórn Norðurorku - fundargerðir
Málsnúmer 2305038Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 319. fundar stjórnar Norðurorku sem fram fór 17. febrúar.
Fundi slitið - kl. 14:53.
Einnig óskaði oddviti eftir að bæta eftirtöldum liðum in á dagskrá fundarins:
Dagskrárliður nr. 6, Stórutjarnaskóli - leikskóli í framtíðarhúsnæði
Dagskrárliður nr. 13, Brunavarnir Þingeyjarsveitar - starf slökkviliðsstjóra.
Dagskrárliður nr. 12, Skjálfandaflói - ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag. Aðrir fundarliðir færast til sem þessu nemur.