Fara í efni

Vegir í náttúru Íslands - til staðfestingar samhliða aðalskipulagi

Málsnúmer 2602039

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 74. fundur - 26.02.2026

Á 46. Fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 18. febrúar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir liðnum - Aðalskipulag 2024 - 2044 endurskoðun þar sem m.a. var lögð fram tillaga að skrá yfir vegi í náttúru Íslands í samræmi við 32. gr. náttúruverndarlaga nr.60/2013. Úr bókun Skipulagsnefndar:

"Skipulagsnefnd samþykkir einnig tillögur að svörum við athugasemdum við skrá um vegi í náttúru Íslands. Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki þá tillögu að vegaskrá sem fram kemur á skýringaruppdrætti og kynnt var samhliða aðalskipulagstillögunni í samræmi við ákvæði 2. mgr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Vegaskráin er samþykkt með öllum þeim margþættu fyrirvörum sem settir voru fram í kynningargögnum og án upplýsinga um vegi innan Vatnajökulsþjóðgarðs, þar sem Náttúruverndarstofnun hefur ekki lokið gerð stjórnunar- og verndaráætlunar á hluta svæðisins. Jafnframt er ljóst að vegaskráin getur af sömu ástæðum ekki hlotið samþykki Náttúruverndarstofnunar eins og áskilið er í lagagreininni, sbr. einnig umsögn stofnunarinnar um aðalskipulagstillöguna."
Til máls tóku: Anna

Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 32. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 samþykkir sveitarstjórn þá tillögu að vegaskrá sem fram kemur á skýringaruppdrætti og kynntur var samhliða aðalskipulagstillögunni. Samþykkt vegaskrárinnar er með öllum þeim margþættu fyrirvörum sem settir voru fram í kynningargögnum og án upplýsinga um vegi innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Ljóst er að vegaskráin getur ekki hlotið samþykki Náttúruverndarstofnunar eins og áskilið er í lagagreininni, sbr. umsögn stofnunarinnar um aðalskipulagstillöguna. Tillaga sveitarstjórnar er því sett fram og samþykkt til málamynda.
Sveitarstjórn gerir ráð fyrir að þessir hnökrar varðandi vegaskrána hafi engin áhrif á staðfestingu aðalskipulagsins nema Skipulagsstofnun geti sýnt fram á að form- eða efnisgallar séu á afgreiðslu sveitarstjórnar á aðalskipulaginu eða gerð þess og vísar þá tillögunni til ráðherra ásamt rökstuðningi í greinargerð, eins og kveðið er á um í 4. mgr. 32. gr. skipulagslaga. Mikilvægt er að hafa í huga að vegaskráin er ekki hluti af aðalskipulaginu þótt samþykkt hennar sé tengd afgreiðslu aðalskipulags.

Samþykkt samhljóða
Getum við bætt efni þessarar síðu?