Öldungamót í blaki 2027 í Þingeyjarsveit - ósk um samstarf og stuðning við mótshald
Málsnúmer 2603023
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 75. fundur - 12.03.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Blakdeild Völsungs í samstarfi við blakdeildir íþróttafélaganna í Þingeyjarsveit er varðar ósk um samstarf og stuðning við að halda öldungamót í blaki í Þingeyjarsveit í apríl 2027. Stuðningur felur í sér afnot af húsnæði sveitarfélagsins til keppnishalds og fyrir lokahóf.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Lögð er fyrir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar útfærsla á aðkomu Þingeyjarsveitar vegna Öldungamóts BLÍ 2027 sem haldið verður í Norðurþingi og Þingeyjarsveit í apríl 2027.
Sveitarstjórn fagnar áformum um að haldið verði öldungamót í blaki á svæðinu. Sveitarstjórn samþykkir að veita mótshöldurum styrk sem nemur útleigu húsanna til mótshalda í Ýdölum, ÍMS og vallarhúsi Laugum. Hvað varðar athugasemd mótshaldara við gólf í íþróttahúsum sveitarfélagsins að Ýdölum og í Reykjahlíð þá er ekki gert ráð fyrir endurnýjun gólfa í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins á þessu ári en umsjónarmanni fasteigna er falið að láta kanna ástand búnaðar í húsunum og kostnaðarmeta endurnýjun á gólfum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda og menningarmála að funda með forsvarsmönnum mótsins hvað varðar frekari útfærslu og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.