Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

75. fundur 12. mars 2026 kl. 14:15 - 14:51 í Þingey
Nefndarmenn
  • Gerður Sigtryggsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Anna Bragadóttir
  • Knútur Emil Jónasson
  • Halldór Þorlákur Sigurðsson
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson
  • Arnór Benónýsson
  • Haraldur Bóasson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir bárust við fundarboð.
Oddviti óskaði eftir að bæta á dagskrá með afbrigðum lið nr. 15: Ungmennaráð - úrbætur í skóla- og félagsstarfi í sveitarfélaginu.

1.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 27

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 27. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 9. mars. Fundargerðin er í tveimur liðum. Liður 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er sér liður á dagskrá fundarins.
Knútur kynnti fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

2.Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. - fundargerðir

Málsnúmer 2308033Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til staðfestingar fundargerðir 60., 61. og 62. stjórnar Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar.
Fundargerðirnar eru staðfest.

3.Þurrkur ehf - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2602062Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Þurrki ehf. Fundurinn er haldinn 6. mars n.k. að Ýdölum kl 14:30.
Sveitarstjórn hafði áður tilnefnt Jónu Björgu Hlöðversdóttur til að fara með atkvæði sveitarfélagsins í tölvupósti og staðfestir það hér með.

Samþykkt samhljóða.

4.Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Lánasjóði sveitarfélaga. Aðalfundur fer fram föstudaginn 20. mars kl. 14:00 á Grand Hótel í Reykjavík en auk þess er boðið erupp á rafræna þáttöku gegnum Teams. Allir sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja fundinn, sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins.

5.Norðausturvegur - athugasemd tengd fyrirhugaðri veglínu

Málsnúmer 2603007Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Róshildi Jónsdóttur, landeiganda Rangár í Kinn, varðandi fyrirhugaða veglínu Vegagerðarinnar
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn þakkar erindið. Þrátt fyrir að sveitarstjórn hafi skilning á málstað landeiganda þá er saga þessa leiðavals orðin mjög löng og hefur útheimt mikla vinnu, samtal og samráð í yfir áratug. Sveitarstjórn tekur undir niðurstöðu Vegagerðarinnar varðandi leiðaval A, sem byggist á góðum samgöngum og umferðaröryggi til framtíðar.

Samþykkt samhljóða.

6.Kosningar í nefndir, ráð og stjórnir

Málsnúmer 2206018Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að tilnefna þurfi einn varamann til viðbótar í yfirkjörstjórn.
Sveitarstjórn tilnefnir Ingiríði Hauksdóttur varamann í yfirkjörstjórn og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að birta henni tilnefninguna.

Samþykkt samhljóða.

7.Öldungamót í blaki 2027 í Þingeyjarsveit - ósk um samstarf og stuðning við mótshald

Málsnúmer 2603023Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Blakdeild Völsungs í samstarfi við blakdeildir íþróttafélaganna í Þingeyjarsveit er varðar ósk um samstarf og stuðning við að halda öldungamót í blaki í Þingeyjarsveit í apríl 2027. Stuðningur felur í sér afnot af húsnæði sveitarfélagsins til keppnishalds og fyrir lokahóf.
Til máls tóku: Jóna Björg og Ragnhildur.

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda og menningarmála að funda með forsvarsmönnum mótsins hvað varðar frekari útfærslu og leggja fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

8.Veiðifélag Reykjadalsár og Eyvindalækjar - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2603020Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá Veiðifélagi Reykjadalsár og Eyvindarlæks sem haldinn verður á Bollastöðum, laugardaginn 11. apríl kl. 14.
Sveitarstjórn felur Haraldi Bóassyni að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

9.Siglingasamband Íslands - áskorum til sveitarstjórna um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur áskorun frá Siglingasambandi Íslands er varðar ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands sem var samþykkt einróma á nýafstöðnu Siglingaþingi Siglingasambandsins.

10.Ástand hitaveitu frá Reykjahlíð í Álftagerði

Málsnúmer 2603037Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Ólöfu Hallgrímsdóttur er varðar ástand hitaveitulagna frá Reykjahlíð í Álftagerði.
Til máls tóku: Árni Pétur og Arnór.

Langvarandi samningsleysi á milli sveitarfélagsins og landeigenda í Vogum frá 1992 um afhendingu vatns og endurgjald fyrir heitt vatn hefur m.a. leitt til þess að viðhaldsþörf hefur hlaðist upp. Um það verður ekki deilt að núverandi ástand hitaveitulagna á leiðinni Reykjahlíð - Vogar er ekki viðunandi og nauðsyn er að fara í framkvæmdir eins fljótt og hægt er. Þó skal haft í huga að rekstur hitaveitu er ekki eitt af lögbundnum verkefnum sveitarfélaga og við vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 þurfti því miður að skera niður áætlaða fjárveitingu til hitaveitunnar þar sem önnur lögbundin verkefni gengu fyrir.
Rekstur hitaveitu þarf að standa undir sér. Því ættu það að vera sameiginlegir hagsmunir allra notenda og eiganda hitaveitunnar að reka hitaveitu sem getur staðið undir nauðsynlegri endurnýjun. Þarna þarf að skilja á milli eigenda hitaorku annars vegar og svo notenda vatns frá dreifikerfi hinsvegar, líkt og hefur verið gert í samningi á milli sveitarfélagsins og eigenda heitavatnsréttinda Reykjahlíðar.
Sveitarstjórn þakkar erindið og felur sveitarstjóra og framkvæmda- og veitunefnd að funda með bréfritara sem fyrst og kynna niðurstöðu þess fundar á næsta sveitarstjórnarfundi 25. mars.

Samþykkt samhljóða.

11.Norðurorka - tillögur að breytingum á samþykktum - drög í vinnslu

Málsnúmer 2603006Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Norðurorku um tillögur að breytingum á samþykktum Norðurorku hf. - drög í vinnslu. Frestur til að senda inn athugasemdir er 19. mars n.k.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn tekur undir bókun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps frá 9.3. og gerir að sinni: "Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar því að fá drögin til umsagnar.
Sveitarstjórn telur að í 2. grein mætti skýra betur hlutverk Norðurorku sem innviðafyrirtækis sem starfar í þágu íbúa sveitarfélaganna.
Sveitarstjórn er sátt við faglega nálgun varðandi stjórn og hlutverk stjórnar, en telur 21. grein mögulega ganga gegn því sjálfstæði stjórnar og armslengd frá pólitískri stjórnun sem annars er verið að leitast eftir með breytingum samþykktanna.
Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við drögin sjálf, en leggur hins vegar áherslu á að minni hluthafar verði áfram með áheyrnarfulltrúa í stjórn svo sem verið hefur. Jafnframt að áheyrnarfulltrúi fái laun fyrir sína fundarsetu sem ekki hefur verið til þessa.
Loks telur sveitarstjórn eðlilegt og fer fram á að minni hluthafar fái beina aðkomu að ferli við val óháðra stjórnarmanna og varamanna þeirra.“

Samþykkt samhljóða.

12.Húsnæðisáætlun 2026

Málsnúmer 2601025Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til staðfestingar drög að húsnæðisáætlun 2026.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn lýsir ánægju sinni með jákvæða íbúaþróun sl. ár og leggur áherslu á áframhaldandi íbúðauppbyggingu í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn samþykkir framlögð drög að húsnæðisáætlun og felur byggingarfulltrúa að senda hana til HMS og bregðast við athugasemdum ef einhverjar verða. Í framhaldi er sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða

13.Sambandið - boð um þáttöku í verkefninu tenging Jónsbókar við skjalakerfi

Málsnúmer 2603039Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur boð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um þátttöku í verkefninu "Jónsbók - tenging við skjalakerfi". Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga (https://jonsbok.ai/is). Í þessum hluta er sveitarfélögum boðið að taka þátt í að gera greiningu á verkefninu.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn sér sér ekki fært að koma að málinu á þessu stigi verkefnisins en lýsir áhuga á að koma að málinu á síðari stigum.

Samþykkt samhljóða.

14.Vetrarveiði á refum - samningur

Málsnúmer 2602046Vakta málsnúmer

Á 27. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi drög að samningi um vetrarveiði á refum:

"Nefndin fór yfir samninginn og gerði breytingar á fyrirliggjandi drögum. Drögum samnings vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar."
Sveitarstjórn samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og felur umhverfisfulltrúa að ganga frá samningum við veiðimenn.

Samþykkt samhljóða.

15.Ungmennaráð - úrbætur í skóla- og félagsstarfi í sveitarfélaginu.

Málsnúmer 2603051Vakta málsnúmer

Á fundi með ungmennaráði 12. mars kom fram ósk fulltrúa í ráðinu um úrbætur í skipulögðu skóla og félagstarfi á vegum sveitarfélagssins milli allra skóla sveitarfélagsins.
Til máls tóku: Eyþór, Ragnhildur og Arnór.

Í kjölfar fundar með ungmennaráði 12.mars þá óskar sveitarstjórn eftir tillögum frá ungmennaráði um úrbætur í skipulögðu skóla- og félagstarfi á vegum sveitarfélagsins milli allra skóla.

16.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 505. mál - Sveitarstjórnarlög

Málsnúmer 2603009Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni 505. máls umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um sveitarstjórnarlög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 20 mars nk.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn telur ekki ástæðu til að senda inn umsögn.

Samþykkt samhljóða.

17.Innviðaráðuneytið - umsögn 51 mál - Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

Málsnúmer 2603010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni 51. máls innviðaráðuneytis um drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 6. mars nk.
Til máls tóku: Jóna Björg, Arnór og Knútur.

Sveitarstjóri sendi umsögn fyrir hönd Þingeyjarsveitar 6.mars s.l. sem sveitarstjórn hafði verið kynnt í tölvupósti. 

Sveitarstjórn staðfestir umsögnina

18.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið - umsögn 56. mál - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks

Málsnúmer 2603022Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni 56. máls umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis Alþingis um tillögu til þingsályktunar - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. mars nk.
Til máls tóku: Jóna Björg og Knútur.

Málinu er frestað til næsta sveitarstjórnarfundar. Sveitarstjóra, oddvita og varaoddvita falið að stilla upp drögum að umsögn og leggja fyrir sveitarstjórnarfund 25. mars.

Samþykkt samhljóða.

19.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 499. mál - varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin framkvæmdastofnun samgöngumála

Málsnúmer 2603019Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni 499. máls umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um varnir gegn snjófljóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála - markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 19. mars nk.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn telur ekki þörf á að senda inn umsögn.

Samþykkt samhljóða.

20.Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna

Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar uppfærð staða aðgerðaáætlunar sem gerð var í kjölfar skýrslu um framtíð ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit.

21.Ársþing SSNE 2026 - boðun

Málsnúmer 2603036Vakta málsnúmer

Ársþing SSNE 2026 verður haldið í Menningarhúsinu Bergi Dalvík 26. mars nk. Þingfulltrúar eru minntir á skráningu á þingið ásamt því að boða sína varafulltrúa ef þeir geta ekki mætt.

22.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir

Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 3. mars 2026.

Fundi slitið - kl. 14:51.

Getum við bætt efni þessarar síðu?