Fara í efni

Norðurorka - tillögur að breytingum á samþykktum - drög í vinnslu

Málsnúmer 2603006

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 75. fundur - 12.03.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Norðurorku um tillögur að breytingum á samþykktum Norðurorku hf. - drög í vinnslu. Frestur til að senda inn athugasemdir er 19. mars n.k.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn tekur undir bókun sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps frá 9.3. og gerir að sinni: "Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar því að fá drögin til umsagnar.
Sveitarstjórn telur að í 2. grein mætti skýra betur hlutverk Norðurorku sem innviðafyrirtækis sem starfar í þágu íbúa sveitarfélaganna.
Sveitarstjórn er sátt við faglega nálgun varðandi stjórn og hlutverk stjórnar, en telur 21. grein mögulega ganga gegn því sjálfstæði stjórnar og armslengd frá pólitískri stjórnun sem annars er verið að leitast eftir með breytingum samþykktanna.
Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við drögin sjálf, en leggur hins vegar áherslu á að minni hluthafar verði áfram með áheyrnarfulltrúa í stjórn svo sem verið hefur. Jafnframt að áheyrnarfulltrúi fái laun fyrir sína fundarsetu sem ekki hefur verið til þessa.
Loks telur sveitarstjórn eðlilegt og fer fram á að minni hluthafar fái beina aðkomu að ferli við val óháðra stjórnarmanna og varamanna þeirra.“

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?