Norðausturvegur - athugasemd tengd fyrirhugaðri veglínu
Málsnúmer 2603007
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 75. fundur - 12.03.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Róshildi Jónsdóttur, landeiganda Rangár í Kinn, varðandi fyrirhugaða veglínu Vegagerðarinnar
Skipulagsnefnd - 47. fundur - 25.03.2026
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Róshildi Jónsdóttur, landeiganda Rangár í Kinn, varðandi fyrirhugaða veglínu Vegagerðarinnar. Erindið hefur áður verið tekið fyrir í sveitarstjórn þann 12.3.2026 þar sem eftirfarandi var bókað: "Sveitarstjórn þakkar erindið. Þrátt fyrir að sveitarstjórn hafi skilning á málstað landeiganda þá er saga þessa leiðavals orðin mjög löng og hefur útheimt mikla vinnu, samtal og samráð í yfir áratug. Sveitarstjórn tekur undir niðurstöðu Vegagerðarinnar varðandi leiðaval A, sem byggist á góðum samgöngum og umferðaröryggi til framtíðar. Samþykkt samhljóða."
Skipulagsnefnd vísar í bókun sveitarstjórnar frá 12.3.2026.
Sveitarstjórn þakkar erindið. Þrátt fyrir að sveitarstjórn hafi skilning á málstað landeiganda þá er saga þessa leiðavals orðin mjög löng og hefur útheimt mikla vinnu, samtal og samráð í yfir áratug. Sveitarstjórn tekur undir niðurstöðu Vegagerðarinnar varðandi leiðaval A, sem byggist á góðum samgöngum og umferðaröryggi til framtíðar.
Samþykkt samhljóða.