Fara í efni

Skipulagsnefnd

47. fundur 25. mars 2026 kl. 09:00 - 12:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Þórhallsdóttir
  • Haraldur Bóasson
  • Sigurður Guðni Böðvarsson
  • Jóna Björg Hlöðversdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Hallgrímur Páll Leifsson
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
  • Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Dagskrá

1.Vogar 2 afmörkun lóðar - merkjalýsing

Málsnúmer 2602056Vakta málsnúmer

Þórdís Guðfinna Jónsdóttir leggur fram merkjalýsingu Voga 2
Skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðarinnar Voga 2a fyrir sitt leiti og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd beinir þvi til merkjalýsanda að yfirfara undirskriftir aðliggjandi landeigenda.

2.Gerði Laugum, Eigandi óskar eftir stækkun á lóð.

Málsnúmer 2601044Vakta málsnúmer

Baldur Breiðfjörð Daníelsson óskar eftir stækkun á lóð við Gerði til suðurs um 6 metra.
Skipulagsnefnd samþykkir að láta vinna merkjalýsingu og breyta lóðamörkum í samræmi við ósk lóðarhafa. Málinu vísað til sveitarstjórnar.

3.Hraunvegur 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluskúr

Málsnúmer 2509053Vakta málsnúmer

Lagt er fram endurlýnjað erindi vegna byggingar geymsluhúss á lóðinni við Hraunveg 8. Lagðar eru fram uppfærðar teikningar og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfi fyrir eigendum Bjargs, Hraunvegs 6 og 10 og Reykjahlíð 4a. Skipulagsnefnd vekur athygli á því að forsenda byggingarleyfis er að húsið sé víkjandi. Komi til þess að Vegagerðin eða sveitarfélagið fari fram á breytingar á staðsetningu hússins síðar þá beri eiganda að fjarlægja húsið á sinn kostnað.
Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

4.Hraunkot 1 Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2603047Vakta málsnúmer

Kolbeinn Kjartansson sækir um stækkun á útihúsum við Hraunkot 1 í Þingeyjarsveit. Meðfylgjandi eru teikningar.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd fellur frá grenndarkynningu i samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdirnar varða ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.

5.Veturliðastaðir fjarskiptastaur - umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2603050Vakta málsnúmer

Míla óskar eftir heimild til að reisa 16 m stagaðan tréstaur fyrir fjarskiptaloftnet ásamt tækjaskáp fyrir fjarskiptabúnað á lóð L240431 í landi Veturliðastaða í Fnjóskadal.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd fellur frá grenndarkynningu i samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdirnar varða ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.

6.Bæjartjörn Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2602057Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarheimild fyrir byggingu einbýlis (notkunarfl. 3 og umfangsfl. 2) á lóð úr landi Stórutjarna, Þingeyjarsveit. Lóðin hefur fengið nafnið Bæjartjörn. Húsið verður á einni hæð og inniheldur íbúð og sambyggða bílgeymslu. Tvö bílastæði við bílgeymslu. Þak verði einhalla með innbyggðum þakrennum. Þriggja tunnu sorpskýli verði við bílgeymslu. Ekkert deiliskipulag er i gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin fyrir eigendum Melhúsa og Stóru-Tjarna i samræmi við 44. gr. skipulagslaga. Einnig skal aflað umsagnar Minjastofnunar og Náttúruverndarstofnunar. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

7.Dæluhús í Helgavogi - breyting í íbúðarhúsnæði - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2503042Vakta málsnúmer

Innkomnar uppfærðar teikningar eftir Baldur Kristjánsson þar sem hann óskar eftir að breyta aðstöðuhúsi í Helgavogi í íbúðarhús fyrir hönd The little fish company ehf.
Skipulagsnefnd samþykkir að óska eftir umsögn HNE og Náttúruverndarstofnunar. Byggingafulltrúa er falið að breyta skráningu að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Skipulagsnefnd vekur athygli á að fyrri bókun um að öll frekari uppbygging og rask á lóðinni sé óheimil, er í fullu gildi. Heimildir sem almennt fylgja íbúðarhúsum um smáhýsi og slíkt eiga ekki við á þessari lóð.

8.Reykjahlíð - Jarðkönnun

Málsnúmer 2509017Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar, minnisblað frá Eflu um jarðkönnun vegna fyrirhugaðrar stækkunar núverandi íbúðasvæðis við Reykjahlíð. Við vinnu aðalskipulags sveitarfélagsins var ákveðið að skipulagning nýrrar byggðar yrði m.a. byggð á sprungukortlagningu og áhættumati
Skipulagsfulltrúa falið að taka saman vinnuskjal með áherslum nefndarinnar um framtíðarþróun þéttbýlisins í Reykjahlíð.

9.Norðausturvegur - athugasemd tengd fyrirhugaðri veglínu

Málsnúmer 2603007Vakta málsnúmer

Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Róshildi Jónsdóttur, landeiganda Rangár í Kinn, varðandi fyrirhugaða veglínu Vegagerðarinnar. Erindið hefur áður verið tekið fyrir í sveitarstjórn þann 12.3.2026 þar sem eftirfarandi var bókað: "Sveitarstjórn þakkar erindið. Þrátt fyrir að sveitarstjórn hafi skilning á málstað landeiganda þá er saga þessa leiðavals orðin mjög löng og hefur útheimt mikla vinnu, samtal og samráð í yfir áratug. Sveitarstjórn tekur undir niðurstöðu Vegagerðarinnar varðandi leiðaval A, sem byggist á góðum samgöngum og umferðaröryggi til framtíðar. Samþykkt samhljóða."
Skipulagsnefnd vísar í bókun sveitarstjórnar frá 12.3.2026.

10.Þingeyjarsveit - tilkynning um fyrirhugaðar niðurfellingar vega af vegaskrá

Málsnúmer 2511044Vakta málsnúmer

Lögð fram svör Vegagerðarinnar vegna athugasemda sveitarfélagsins um niðurfellingu vega af vegaskrá.
Skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að taka breyttar vegskráningar upp í samtali við Vegagerðina ásamt fleiri málum sem snúa að ástandi vega og umsjón.

11.Bárðardalsvegur vestri (842) - ný og endurbygging - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2603060Vakta málsnúmer

Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi vegna ný- og endurbyggingu Bárðardalsvegar vestri (842) ásamt byggingu nýrrar brúar yfir Öxará. Framkvæmdakaflinn er 3,1 km langur og nær frá Hringvegi (1) suður fyrir Öxarárveg (8698). Veglína verður færð í nýtt vegstæði næst vegamótunum við Hringveg og næst nýju brúarstæði, annars verður vegurinn áfram í núverandi vegstæði. Innifalið í framkvæmdinni er endurbygging Öxarárvegar (8698) sem verður breikkaður og lagður bundnu slitlagi að framkvæmdum loknum. Í framhaldi Öxarárvegar verður námuvegur að efnistökusvæði í námunda við Öxará, þar sem hann liggur yfir Öxará verða sett 3 ræsi. Vegamót Hrifluvegar (8657) við Hringveg verða færð um 130 m til vesturs vegna öryggissjónarmiða. Hrifluvegur mun því liggja í nýju vegstæði um 230 m kafla þar sem hann sveigir til austurs frá nýrri tengingu og inn á núverandi Hrifluveg. Innifalið í framkvæmdinni er lenging á vegriðum brúar á Hrúteyjarkvísl. Nýtt vegstæði Bárðardalsvegar vestri liggur yfir

Bárðardalshraun.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

12.Grjótagjá - uppbygging innviða skv. samþykktu deiliskipulagi - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2603024Vakta málsnúmer

Óskað er framkvæmdaleyfis vegna uppbygginga við Grjótagjá í samræmi við deiliskipulag. Einnig er óskað leyfis fyrir lagningu jarðstrengs frá jarðböðunum að Grjótagjá. Fyrirhugaðar framkvæmdir snúa að því að útbúa bílastæði og setja niður salernisgám á byggingarreit. Unnið er að öflun samþykkis landeigenda.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir nýju bilastæði og lagningu rafstrengs, í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar samþykki landeigenda liggur fyrir. Sækja þarf um byggingarheimild fyrir salernisgám sem ætlað er að standa í meira en eitt ár.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?