Bárðardalsvegur vestri (842) - ný og endurbygging - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2603060
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 47. fundur - 25.03.2026
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi vegna ný- og endurbyggingu Bárðardalsvegar vestri (842) ásamt byggingu nýrrar brúar yfir Öxará. Framkvæmdakaflinn er 3,1 km langur og nær frá Hringvegi (1) suður fyrir Öxarárveg (8698). Veglína verður færð í nýtt vegstæði næst vegamótunum við Hringveg og næst nýju brúarstæði, annars verður vegurinn áfram í núverandi vegstæði. Innifalið í framkvæmdinni er endurbygging Öxarárvegar (8698) sem verður breikkaður og lagður bundnu slitlagi að framkvæmdum loknum. Í framhaldi Öxarárvegar verður námuvegur að efnistökusvæði í námunda við Öxará, þar sem hann liggur yfir Öxará verða sett 3 ræsi. Vegamót Hrifluvegar (8657) við Hringveg verða færð um 130 m til vesturs vegna öryggissjónarmiða. Hrifluvegur mun því liggja í nýju vegstæði um 230 m kafla þar sem hann sveigir til austurs frá nýrri tengingu og inn á núverandi Hrifluveg. Innifalið í framkvæmdinni er lenging á vegriðum brúar á Hrúteyjarkvísl. Nýtt vegstæði Bárðardalsvegar vestri liggur yfir
Bárðardalshraun.
Bárðardalshraun.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.