Veturliðastaðir fjarskiptastaur - umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2603050
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 47. fundur - 25.03.2026
Míla óskar eftir heimild til að reisa 16 m stagaðan tréstaur fyrir fjarskiptaloftnet ásamt tækjaskáp fyrir fjarskiptabúnað á lóð L240431 í landi Veturliðastaða í Fnjóskadal.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd fellur frá grenndarkynningu i samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdirnar varða ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.