Fara í efni

Grjótagjá - uppbygging innviða skv. samþykktu deiliskipulagi - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2603024

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 47. fundur - 25.03.2026

Óskað er framkvæmdaleyfis vegna uppbygginga við Grjótagjá í samræmi við deiliskipulag. Einnig er óskað leyfis fyrir lagningu jarðstrengs frá jarðböðunum að Grjótagjá. Fyrirhugaðar framkvæmdir snúa að því að útbúa bílastæði og setja niður salernisgám á byggingarreit. Unnið er að öflun samþykkis landeigenda.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir nýju bilastæði og lagningu rafstrengs, í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar samþykki landeigenda liggur fyrir. Sækja þarf um byggingarheimild fyrir salernisgám sem ætlað er að standa í meira en eitt ár.

Skipulagsnefnd - 50. fundur - 26.05.2026

Fyrir liggur samþykki landeigenda 93,1% úr landi Voga. Við deiliskipulagsgerðina voru haldnir fundir hjá landeigendum, málið sent til afgreiðslu hjá sveitarfélaginu sem auglýsti deiliskipulagið með þeim auglýsingum og athugasemdarfrestum sem löglegir eru og allir geta gert athugasemdir við. Deiliskipulag Grjótagjár var samþykkt í skipulagsnefnd Skútustaðahrepps 15. október 2018 og í sveitarstjórn Skútustaðahrepps 24. október 2018.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita framkvæmdaleyfi byggt á samþykki 93,1% landeigenda og staðfestu deiliskipulagi. Vísað er til 7. greinar c. 3ja mgr. jarðalaga nr 81/2004 þar sem heimilað er að aukinn meirihluti sameigenda geti tekið ákvörðun sem ekki teljast venjulegar en hvorki teljast óvenjulegar né meiriháttar. Bent er á að um er að ræða framkvæmd í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Getum við bætt efni þessarar síðu?