Fara í efni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið - umsögn 56. mál - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks

Málsnúmer 2603022

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 75. fundur - 12.03.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni 56. máls umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis Alþingis um tillögu til þingsályktunar - Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. mars nk.
Til máls tóku: Jóna Björg og Knútur.

Málinu er frestað til næsta sveitarstjórnarfundar. Sveitarstjóra, oddvita og varaoddvita falið að stilla upp drögum að umsögn og leggja fyrir sveitarstjórnarfund 25. mars.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 76. fundur - 25.03.2026

Á 75. fundi sveitarstjórnar var sveitarstjóra, oddvita og varaoddvita falið að stilla upp drögum að umsögn og leggja fyrir sveitarstjórnarfund 25. mars.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn og felur sveitarstjóra að senda hana inn á samráðsgátt.
Getum við bætt efni þessarar síðu?