Almenningssamgöngur - samningur um styrk verkefna
Málsnúmer 2604007
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar samningur sem gerður hefur verið við Byggðastofnun um styrk vegna verkefna á sviði almenningssamgangna.
Ungmennaráð - 4. fundur - 24.04.2026
Þingeyjarsveit hlaut á dögunum styrk til þess að koma á tómstundaakstri í sveitarfélaginu, í félagsmiðstöðvastarf til að byrja með. Ungmennaráði er falið að leggja fram sínar tillögur að fyrirkomulagi aksturs.
Ungmennaráð fagnar styrkveitingunni og mælir með að akstursleið mögulegs tómstundabíls væri á milli grunnskólanna til að byrja með. Verkefnastjóra falið að vinna áfram að því að koma á reglubundnum tómstundaakstri næsta vetur.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 30. fundur - 12.05.2026
Þingeyjarsveit hlaut styrk til þess að koma á tómstundaakstri í sveitarfélaginu, í félagsmiðstöðvastarf til að byrja með. Verkefnastjóri ÆTM-mála hefur gert drög að strætóleiðum m.v. umræður á 4. fundi Ungmennaráðs.
Nefndin fagnar styrkveitingu til akstur í tómstundastörf og felur verkefnastjóra að vinna málið áfram. Nefndin leggur til að akstur verði til og frá félagsmiðstöðvastarfi.
Lagt fram til kynningar.