Fara í efni

Félag sumarhúsaeigenda í Lundi - vegna sorpmála

Málsnúmer 2604090

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 77. fundur - 16.04.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá félagi sumarhúsaeigenda í Lundsskógi um sorphirðingu.
Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar því til umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfisnefnd - 35. fundur - 07.05.2026

Á 77. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar var tekið fyriri. erindi frá félagi sumarhúsaeigenda í Lundsskógi um sorphirðingu.

Eftirfarandi var bókað:

" Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar því til umhverfisnefndar. Samþykkt samhljóða."
Umhverfisnefnd þakkar fyrir erindið. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að sjá alfarið um sorphirðu við sumarhúsabyggð Lundskógar. Af því gefnu að sorphirðugjöld standi undir þeim kostnaði. Nefndin vísar því til starfsmanns nefndarinnar að kostnaðargreina umrætt verkefni og vísar því áfram til sveitarstjórnar til samþykktar. Jafnframt er bent á að endurskoðun á sorphirðukerfinu er í gangi og setur nefndin því fyrirvara um breytingar á kerfinu árið 2027. Þar verður leitast við að samræma þjónustu við sumarbústaði í sveitarfélaginu eins og unnt er.
Getum við bætt efni þessarar síðu?