Fara í efni

Umhverfisnefnd

35. fundur 07. maí 2026 kl. 15:00 - 16:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Árni Pétur Hilmarsson
  • Sigrún Jónsdóttir
  • Guðrún Sigríður Tryggvadóttir
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
  • Elísabet Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Daði Lange Friðriksson
  • Brynja Dögg Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði: Daði Lange
Dagskrá

1.Félag sumarhúsaeigenda í Lundi - vegna sorpmála

Málsnúmer 2604090Vakta málsnúmer

Á 77. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar var tekið fyriri. erindi frá félagi sumarhúsaeigenda í Lundsskógi um sorphirðingu.

Eftirfarandi var bókað:

" Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar því til umhverfisnefndar. Samþykkt samhljóða."
Umhverfisnefnd þakkar fyrir erindið. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að sjá alfarið um sorphirðu við sumarhúsabyggð Lundskógar. Af því gefnu að sorphirðugjöld standi undir þeim kostnaði. Nefndin vísar því til starfsmanns nefndarinnar að kostnaðargreina umrætt verkefni og vísar því áfram til sveitarstjórnar til samþykktar. Jafnframt er bent á að endurskoðun á sorphirðukerfinu er í gangi og setur nefndin því fyrirvara um breytingar á kerfinu árið 2027. Þar verður leitast við að samræma þjónustu við sumarbústaði í sveitarfélaginu eins og unnt er.

2.Sorpútboð Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2503045Vakta málsnúmer

Brynja Dögg og Daði Lange fara yfir stöðuna á sorpútboði og fara yfir gögn sem búið er að vinna og yfirfara.
Nefndin þakkar Daða, starfsmanni nefndarinnar, og Brynju Dögg fyrir góða vinnu og samantekt. Mikilvægt er að ný sveitarstjórn og ný umhverfisnefnd taki málið föstum tökum og nýti sér þá vinnu og gögn sem búið er að vinna. Stefnt er á að úboðið sé klárt í haust og nýr aðili geti hafið sorphirðu áramótin 2026-2027.

Fundi slitið - kl. 16:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?