Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar 2026 - samstarf vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu

Málsnúmer 2603048

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 76. fundur - 25.03.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá sýslumannninum á Norðurlandi eystra varðandi samstarf vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu við sveitarstjórnarkosningar 2026.

Að þessu sinni hefur embættið ákveðið að gefa kjörstjórnum ofangreindra sveitarfélaga kost á því að afhenda sýslumanni kjörkassa til notkunar vegna atkvæðagreiðslu kjósenda viðkomandi sveitarfélaga á völdum kjörstöðum embættisins. Vonast er til að þetta fyrirkomulag gagnist bæði kjósendum og kjörstjórnum sveitarfélaganna, en eins og kunnugt er hefur kjósendum í sveitarstjórnakosningum, sem greiða atkvæði utan kjörfundar, að jafnaði verið leiðbeint um að annast sjálfir flutning og afhendingu atkvæðis síns til viðkomandi kjörstjórnar/sveitarfélags.
Sveitarstjórn fagnar boði um samstarf frá sýslumanningum á Norðurlandi eystra sem mun auka þjónustu við kjósendur í sveitarfélaginu og samþykkir að afhenda kjörkassa til notkunar við utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá embættinu sem kjörstjórn mun nálgast fyrir kl. 15 föstudaginn 15. maí.
Getum við bætt efni þessarar síðu?