Sveitarstjórnarkosningar 2026 - atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Málsnúmer 2603049
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 76. fundur - 25.03.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá sýslumanninum á Norðurlandi eystra varðandi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Vakin er athygli á 69. gr. kosningalaga nr. 112/2021 en þar er framkvæmdinni lýst svo: „Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur farið fram: Í húsnæði á vegum sveitarfélags, enda skal sýslumaður að ósk sveitarstjórnar skipað kjörstjóra, sem getur verið starfsmaður sveitarfélags, til þess að annast atkvæðagreiðslu. Heimilt er að ósk sveitarfélags að slíkur kjörstaður sé hreyfanlegur, enda sé jafnræðis gætt við veitingu þeirrar þjónustu.“
Þar með er ósk sveitarstjórnar nú forsenda skipunar kjörstjóra sýslumanns og bendir sýslumáður á að ef standi vilji sveitarstjórna til áframhaldandi samstarfs óskar hann staðfestingar á því, svo fljótt sem verða má.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að óska eftir því við sýslumann að skipa kjörstjóra til að sinna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga og að kjörstaðir vegna hennar verði á skrifstofu Þingeyjarsveitar í Þingey, Hlíðavegi 6 í Reykjahlíð og í Stórutjarnaskóla.